<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, október 26, 2005

Alltaf hressir 

Jæja stelpur


Eins og þið sjáið þá er Comments-kerfið komið í gang. Endilega notið það en það var hún Signý sem reddaði þessu hjá okkur. Það er leikur hjá okkur á föstudaginn við ÍR í Egilshöllinni kl 21:00. En áður er æfing á fimmtudaginn (á morgun) í Frostaskjóli, eða KR-vellinum fyrir Guðný og félaga. En Guðný var göbbuð alveg svakalega efit leikinn við 3.fl.kvk og höfundarnir voru að sjálfsögðu Guðný og Magga, spyrjið Hlíf um þetta endilega.
-
En það er margt sem að við verðum að vinna í leiknum hjá okkur td. er of mikið bil á milli miðju og varnar, of mikið bil á milli varnarmanna, við gefum of oft boltan frá okkur í staðin fyrir að gefa í lappir á samherja, við eigum það til að snúa okkur inn í andstæðinginn á hættulegum svæðum, við biðum eftir sendingunni áður en við tökum hlaupið osfrv. En það sem er gott við fótboltan er að maður getur alltaf bætt sig.

Dagskráin:

Fimmtudagurinn 27.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:15-22:00, klæða sig vel........

Föstudagurinn 28.okt, Leikur við ÍR í Egilshöll
mæting kl 20:00, leikurinn byrjar kl 21:00

Sunnudagurinn 30.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, klæða sig vel........


Með kveðju Teddi

Comments:
Húrra, kommentkerfi... Signý gott með þig:)
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?