<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, október 16, 2005

Leikur no. 2 og sigur í höfn........ 

Jæja stelpur

Eins og við töluðum um eftir KR-leikinn þá ætluðum við að mæta ákveðnar til leiks á móti Þrótti R. Sem að við gerðum og strax frá fyrstu mín þá virtist þetta vera okkar leikur og settum við 1 mark á þær í fyrrihálfleik, mikil barrátta og fínt spil. Seinni hálfleikur við skorum 2-0, svo er eins og að við höfum gefið eftir og haldið að þetta yrði ekkert mál og þar af leiðandi hleyptum við Þrótturunum inn í leikinn. Eftir að þær skoruðu 2-1 lágu þær dálítið á okkur og vorum við heppnar að fá ekki fleiri mörk á okkur. En Rúna setti 2 í lokin og kláraði leikinn fyrir okkur og endatölur 4-1. Flottur sigur en maður má aldrei vanmeta andstæðinginn og sama hvað staðan er þá er alltaf staðan 0-0. Af hverju ? Því að þá er maður alltaf á tánnum og er að berjast fyrir að skora sigurmarkið og um leið að passa það að fá ekki á okkur mark...............

Dagskrá vikunar:

Þriðjudagurinn 18.okt, Egilshöll Leikur við HK/Víking
Sami hópur og mæti í síðasta leik á að mæta, nema að Beta litla og Sigrún bætast við.
Mæting kl 18:30 (fundur fyrir leik) og byrjar leikurinn kl 19:30. Hugið að svefni daginn fyrir leik sem og matarræði, daginn fyrir leik og á leikdegi. Munið GÆS, GÆS, GÆS, Geta, Ætla, Skal

Fimmtudagurinn 20.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig eftir veðri

Föstudagurinn 21.okt, Egilshöll Leikur við Fjölni
Mæting kl 18:15 (fundur fyrir leik) og byrjar leikurinn kl 19:15. Muna svefn og matarræði...

Sunnudagurinn 23.okt, Frostskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, klæða sig eftir veðri


Lesa vel.

Hvort sem þú heldur að þú getir eitthvað eða getir það ekki, þá hefurðu yfirleitt rétt fyrir þér.



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?