<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, október 20, 2005

Leikur no. 3 búinn og ekki nógu gott...... 

Jæja stelpur

Þá er leikur no. 3 búinn og var hann við HK/Víking, endatölur 1-1. Ég var ekki alveg nógu sáttur við þennan leik hjá okkur vegna þess að ég fann það á mér fyrir leikinn að þetta yrði ekki okkar dagur. Hvers vegna spyrjið þið ? Já, vegna andrúmsloftsins í upphituninni og einnig hafði ég það á tilfinningunni að þið hafið ekki nennt þessu. Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt að alhæfa svona vegna þess að það stóðu sig nokkrar mjög vel. En það er ekki nóg, svona leiki eigum við að klára ef að við viljum ná árangri, ekki satt ? Það er ekkert gaman að spila leik eftir leik og koma svo alltaf heim og fá spurninguna "Hvernig gekk ?", "Ja, við gerðum jafntefli en vorum betri". Við erum í 2.flokki og handan við hornið er meistaraflokkur og þar er ekkert elsku mamma. Ef þú stendur þig ekki þá ertu ekki inni í myndinni. Við erum nefnilega að fá fullt af færum ca. 12-18 færi í leik en skorum svo kannski ekki nema 1-2 mörk (KR og HK/Víkingur), engan veginn nógu gott.


Sjáumst í kvöld á æfingunni svo er leikur á móti Fjölni á föstudaginn.


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?