<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, október 12, 2005

Leikur no.1 er búinn....... 

Jæja stelpur

Þá er fyrsti leikurinn okkar sama búinn og endaði hann með tapi 3-2 fyrir KR. Þó að þær tölur hafi lítið um þennan leik að segja, því að við stjórnuðum leiknum svona 90 % og áttum á annan tug færa til að klára leikinn en þær fengu 4-5 færi í leiknum. Spilið hjá okkur var fínt og hefðum við getað gert þetta markvissara oft á tíðum. Því það sást á okkur að við höfum ekki spilað mikið sama, jú fyrirgefið mér við höfum mætt á 1 æfingu sama og þó það vantaði nokkra leikmenn sem spiluðu þennan leik á þá æfingu. Það verður fróðlegt að sjá hverjar mæta á næstu æfingu hjá okkur sem verður á fimmtudaginn, því að það er leikur á föstudaginn (inni í Egilshöll). En við tölum betur saman á fimmtudaginn en ég vill þakka þeim foreldrum sem komu til að styðja okkur í þessum kulda. Svo mjög bráðlega þurfum við að halda foreldrafund fyrir þá foreldra sem eiga stelpur sem eru fæddar, 87, 88 og 89.

En munum að "þetta er enginn fegurðarsýning" eins og einn foreldri hjá þeim svart hvítu sagði við dóttur sína á leiknum.
-
Muna að senda mér upplýsingarnar um ykkur, MJÖG MIKILVÆGT.

Dagskrá:

Fimmtudagurinn 13.okt, Frostaskjól (úti)
kl 20:00 (fundur (inni), talað um leikinn við KR)
kl 20:30-22:00 (æfing), muna að klæða sig eftir veðri.

Föstudagurinn 14.okt, Leikur í Egilshöllinni
Mæting kl 20:00 (fundur inn í klefa fyrir leik)
kl 21:00 byrjar leikur Valur vs. Þróttur R

Sunnudagurinn 16.okt, Frostaskjól (úti)
kl 14:00-16:00, muna að klæða sig eftir veðri.

Þriðjudagurinn 18.okt, Leikur í Egilshöllinni
Mæting kl 18:30 (fundur inn í klefa fyrir leik)
kl 19:30 byrjar leikur Valur vs. Víkingur R



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?