<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, október 07, 2005

Á næstunni hjá okkur.......... 

Jæja stelpur
Ein æfingin búinn og margar eftir, hahahah. Þetta var fín æfing hjá okkur í gær í Frostaskjólinu, greinilega að þið voruð mætar til að taka á því. En í næstu viku byrjar Haustmót KRR og þar tökum við þátt að sjálfsögðu. Ég er búinn að fá það staðfest að þið sem eruð fæddar 86 eruð gjaldgengar og munuð því spila með okkur í þessu móti. En ég þarf að biðja ykkur um að senda mér á netfangið mitt teddy@internet.is upplýsingar um ykkur þ.e.a.s. Nafn, kennitölu, heimilisfang, síma (gsm og hs), netfangið, msn-ið ykkar og hvaða stöðu þið hafið spilað. Auk þess þarf ég að vita nöfn forráðamanna ykkar og síman hjá þeim, einnig ef að þið hafið meiðslasögu þá væri hún kærkomin líka.
-
Ég reikna ekki með að vera með æfingu fyrir leikinn sem er á þriðjudaginn hjá okkur á móti KR en við munum tala sama fyrir leikinn og fara yfir nokkur einföld atriði. Það getur verið að það verði einhver með mér á leiknum til þess að hjálpa mér og verður það sennilega Soffía, en það kemur í ljós síðar. Þetta mót er spilað mjög þétt eins og þið getið séð ef að þið kíkið á linkinn hér hægrameginn á síðunni undir "Haustmót Okt 2005".
-
Æfingarnar falla niður á föstudaginn vegna þess að Egilshöll er lokuð og á sunnudaginn vegna uppskeruhátíðarinar.

Dagkráin:

Sunnudagurinn 9.okt, Valsheimilið (uppskeruhátíðin)
Mæting kl 10:15 og hefst hátíðin kl 10:30. Eftir hátíðina verður boðið uppá andlitsmálingu og svo verða rútuferðir á völlinn á leik mfl.kvk Vals vs. Turbine Potsdam á Laugardalsvellinum í 8 liða úrslitum Evrópukeppninar. Frítt er á völlinn í boði VISA og hvetjum við ykkur öll til að mæta á leikinn, við þurfum á ykkar stuðningi að halda. ÁFRAM VALUR.

Þriðjudagurinn 11.okt, Frostaskjól - Gervigras (úti)
mæting kl 18:30 og byrjar leikurinn kl 19:30, (klæða sig eftir veðri)


Ég endurtek að það er undir ykkur komið hversu langt þið viljið ná í boltanum og því vill ég mæla með að þið skokkið sjálfar um helgina.


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?