laugardagur, nóvember 19, 2005
Nú er komið að því........
Jæja stelpur
-
Það er ýmislegt að gerast hjá okkur þ.e.a.s. nú fara að sjást ný andlit á æfingum hjá okkur. Thelma Ýr (ÍA) og Hafdís (ÍR) eru búnar að skrifa undir félagsskipti og má búast við fleirum á æfingar hjá okkur á næstu vikum. Það kemur stelpa í lok mánaðarins frá Danmörku til okkar sem heitir Sasja, hún var í U17 hjá Danmörku og í liði sem heitir Hjorring en svo meiddist hún og hætti. Henni langar að byrja aftur og er að flytja til Íslands til að vinna og hafði samband við mig. Þessi skilaboð ættu að segja ykkur að okkur er alvara með að vera í toppbarráttunni í sumar og þær sem eru ekki tilbúnar í það verkefni með okkur vinsamlegast látið mig vita sem fyrst.
-
Í næstu viku breytast æfingarnar hjá okkur dálítið en verða meira spennandi fyrir vikið en þið sjáið það bara hér að neðan.
Dagskráin næstu viku:
Sunnudagurinn 20.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14.00-16:00, klæða sig eftir veðri.......
Þriðjudagurinn 22.nóv, Egilshöll - gervigras með mfl
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri....... ha ha ha
Fimmtudagurinn 23.nóv, Egilshöll - gervigras með mfl
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri....... he he he
Föstudagurinn 24.nóv, Egilshöll - gervigras
kl 19:45-21:30, þið þurfið ekkert að klæða ykkur eftir veðri
Sunnudagurinn 26.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, húfu og vettlingar..........
Með kveðju Teddi S
Comments:
Skrifa ummæli