<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, nóvember 28, 2005

Sjálfsskoðun........ 

Jæja stelpur

Allir hafa gott af því að stunda smá naflaskoðun endrum og eins. Með naflaskoðun á ég við, að taka sjálfan sig og gagnrýni sig pínu. Það er einmitt fyrsta verkefnið. Skoðið ykkur sjálfar sem knattspyrnumenn. Svarið eins heiðarlega og ykkur er unnt. Það er ágæt hugmynd að líta á þessi atriði með einhverjum sem hefur fylgst með ykkur í gegnum tíðina og þekkir ykkur, mömmu, pabba eða systkini. Sendið mér síðan tölvupóst með svörunum. Ég mun ekki sýna neinum svör ykkar. Það eru ekki gefnar neinar einkunnir, enda ekki til nein röng svör við spurningum sem þessum.

Svarið eftirfarandi spurningum.

1. Helstu kostir þínir sem knattspyrnumanns (nefnið amk. 5 atriði)
2. Helstu gallar þínir sem knattspyrnumanns (nefnið 2 atriði)
3. Í hvaða stöðu telurðu þig spila best ?
4. Í hvaða stöðu telurðu þig spila verst ?
5. Hvar sérðu þig eftir 5 ár ?
6. Settu þér æfingamarkmið fyrir þetta tímabil.


Svör sendist á teddy@internet.is í síðasta lagi á kl. 20:00 á fimmtudagskvöld. Að lokum langar mig til að benda ykkur á að vera duglegar í skólanum og þó að fótboltinn sé farinn að taka meiri tíma nú en áður, þá á enginn að slaka á í skólanum. Það er nefnilega betra að sleppa æfingu og klára að læra heima, en að ætla sér að læra eftir æfingu, þá orðnar dauðþreyttar. En þær sem skipuleggja sig vel, þær semnýta tímann á milli skóla og æfinga til að læra og geyma alla tölvuleiki, MSN hangs og vídeógláp þar til að æfingu lokinni. :). Sem sagt að ef að þið eruð skippulagðar þá eigið þið ekki að þurfa að sleppa æfingu..............



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?