<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, desember 16, 2005

Jæja stelpur

Takk fyrir gott spjall á fimmtudaginn. Og munið að hugarfarið þarf að vera rétt til þess að geta tekið almennilega á þeim verkefnum sem að maður fær í hendur. En ég gleðst yfir því þegar að foreldrar ykkar eru að fylgjast með því sem að þið erð að gera og það ættuð þið að gera líka. Það er rétt sem að "móðir" sagði með stafsetninguna á "Cooper-testinu" en það stóð aldrei til að vera með testið á laugardeginum, vegna þess að það gat verið æfingaleikur hjá mfl.kvk og þá hefðu nokkrir leikmenn úr 2.fl.kvk þurft að detta inn í það verkefni með þeim. En leikurinn verður ekki en þrátt fyrir það þá myndu stelpurnar ekki taka einhver test 2 daga í röð. En takk fyrir sýndan áhuga.

Daskráin næstu daga:

Föstudagurinn 16.des, Egilshöll (inni)
kl 18:00-18:30 (bara testið og búið)
eftirtaldir leikmenn eiga að mæta með meistaraflokknum í "Píp-test" það eru: Beta, Thelma, Guðný, Þórdís, Hafdís, Bergdís, Magga og Hlíf. Hinar eru í fríi en þessar eru búnar...

Sunnudagurinn 18.des, Frostaskjól (úti) SKYLDUMÆTING
kl 14:00-16:00 (koma með hlaupaskó líka) , klæða sig vel



Með kveðju Teddi

Comments:
Hæhæ, því miður! kemst ekki á æfinguna á morgun:/ ég er að vinna alltaf aðrahverja helgi, en til móts við það er ég búin að fara 3svar í baðhúsið í vikunni... Sjáumst á þriðjudaginn...
 
áttum við ekki að hlaupa e-h vist marga km í fríinu og e-h þannig? en er æfing á þrið???
kv.Hlíf
 
Það var sko SJÚKT gaman á æfingunni í dag félagar.. fámennt eeeen góðmennt.. farið að mæta á æfingu félagar !!!
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?