fimmtudagur, desember 01, 2005
Til foreldra frá Unglingaráði Vals
Dreifibréf til foreldra og forráðamanna og iðkenda vegna rækjusölu og sölu á úrvalshumar fyrir jólin 2005.
Mikill áhugi er á knattspyrnuiðkun hjá Val sem sést best á fjölda ungra og efnilegra iðkenda. Rekstur unglingaráðs kostar mikið og þótt vel sé haldið á málum þurfum við viðbótarfé til að ná endum saman. Unglingaráð hefur mörg undanfarin ár ráðist í fjáröflun með rækjusölu og er vonast eftir góðum undirtektum foreldra, félaga og annarra velunnara Vals. Nú er í fyrsta sinn einnig í boði úrvalshumar. Hagnaður er eingöngu notaður til uppbyggingarstarfs innan knattspyrnudeildar Vals í yngri flokkum og hluti ágóðans rennur til iðkenda og er lagður inn á reikning þeirra í Landsbankanum.
Fyrirkomulag rækjusölunnar
1. Boðið er upp á fyrsta flokks rækju sem pökkuð er í 2 kg poka til útflutnings.
Verð hvers poka er kr. 2.700,-
1. Boðið er upp á fyrsta flokks humarr í 1 kg poka til útflutnings.
Verð hvers poka er kr. 4.000,-
2. Til að tryggja gæði vörunnar verður hún seld fyrirfram og henni síðan dreift til kaupenda sem greiða við afhendingu. Að þessu sinni verður keyrt út:
Dagana 8. og 9. desember 2005.
3. Meðfylgjandi blöð skýra sig að mestu sálf, en þar skal skrá nöfn, heimilisföng og síma kaupenda fyrir rækjur á annað blaðið og fyrir humar á hitt blaðið. Boðið er upp á greiðslukortaþjónustu fyrir þá sem þess óska.
4. Markmiðið er að hver selji sem flesta poka og fyrir hvern seldan poka fær iðkandi kr. 300,-
Veitt er sérstök viðurkenning þeim flokki sem nær bestum árangri í rækjusölunni.........
Óskað er eftir að pöntunareyðublöðum sé skilað í netfangið gudniolg@simnet.is
Í ALLRA SÍÐASTA LAGI mánudaginn 5. desember 2005, kl. 21.00. Til að auðvelda úrvinnslu er æskilegt að upplysingar um kaupendur séu skráðar á eyðublaðið og það sent með sem viðhengi. Einnig er hægt að koma pöntunarblöðum til Péturs íþróttafulltrúa í Valsheimilið í síðasta lagi mánudaginn 5. desember. Mikilvægt er að skrifa skýrt.
Það er von okkar að foreldrar og forráðamenn sýni þessu verkefni

áhuga með því að aðstoða börnin við að finna kaupendur.
Áhugsamt aðstoðarfólk við útkeyrslu hafi samband við:
Guðna Olgeirsson (s. 588 7273 & 861 7354)
Jón Höskuldsson (s. 588 9424 & 893 7020)
Jónínu Ingvadóttur (s. 5576327 & 8202045)
Með von um góða samvinnu og árangur. Unglingaráð knd Vals.
Sjá einnig upplýsingar á www.valur.is

Comments:
Skrifa ummæli