<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, janúar 30, 2006

Smá breyting.... 

Jæja stelpur
Vegna þess að ég er einn með mfl.kvk þá verð ég að fella æfinguna hjá 2.fl.kvk niður þriðjudaginn 31.jan. En í staðin er æfing á mánudaginn 30. jan með 3.fl.kvk í Safamýrinni kl 18:45-20:30.

Sem sagt:

Mánudagurinn 30.jan, Safamýrin (úti)
kl 18:45-20:30

Þriðjudagurinn 31.jan, Frostaskjól FELLUR NIÐUR


Næsta æfing á fimmtudaginn........


kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, janúar 27, 2006

Næstu dagar hjá okkur...... 

Jæja strákar


Það er enginn æfing í dag (föstudag), en eins og þið vitið þegar að æfing fellur niður á að fara í ræktina eða út að hlaupa og taka styrktaræfingar. En því miður erum við búnar að missa föstudagstíman í Egils. Svo færist æfingin frá sunnudeginum fram á laugardaginn og verður hún í Frostaskjóli með 3.fl.kvk, nánar hér að neðan.....
-
Næsta verkefni hjá okkur er æfingaleikur við KR. Hann verður föstudaginn 3.feb og byrjar kl 18:30 og er búinn kl 20:00.

Dagskráin:

Föstudagurinn 27.jan, FRÍ

Laugardagurinn 28.jan, Frostaskjól (úti)
mæting kl 14:20 "Intervalhlaup" 3x3 en æfingin byrjar kl 14:45 og er til 16:00

Sunnudagurinn 29.jan, FRÍ


Munið að æfingin skapar meistarann......


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Koma svo nú........ 

Jæja stelpur


Það verður því miður ekkert af Keflavíkurferðinni vegna þess að Lea sem er að þjálfa með mér í 5.fl.kvk er að fara til USA núna á miðvikudaginn og þess vegna getur enginn tekið æfingarnar fyrir mig hjá 5.fl.kvk. En við eigum eftir að fara í svona ferð, ekki spurning.
-
En það verður ekki æfing á í Frostaskjóli vegna þess að hann er ennþá lokaður en opnar á morgun miðvikudag aftur, þannig að það styttist í það að við spörkum í bolta aftur. Þannig að við bregðum á það ráð að fara í Egilshöllina til þess að hlaupa og gera styrktaræfingar en þær sem vilja geta farið í ræktina til þess að hlaupa og lyfta. Ég veit að Stella er búinn að vera rosalega dugleg að fara í ræktina, flott hjá þér Stella. En látið mig samt vita hvort þið ætlið að gera.
-

Dagskráin:

Þriðjudagurinn 24.jan, Egilshöll (inni)
mæting kl 20:00 og koma með hlaupaskó með ykkur. Við munum hlaupa og gera styrktaræfingar og ég reikna með að þið verðið búnar kl 21:00.

Fimmtudagurinn 26.jan, Frostaskjól, (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig vel

Föstudagurinn, 27.jan, ?
nánar síðar.....


Með kveðju Teddi

Comments:
"Football isn't just a sport, it's a way of life!"

luv :*
 
Það er rétt hjá þér Guðný
 
Skrifa ummæli

laugardagur, janúar 21, 2006

Fyrirhuguð ferð til Keflavíkur...... 

Jæja stelpur

Ég ætti kannski að útskýra ferðina aðeins betur sem að ég er að skipuleggja fyrir okkur en reyndar þurfa nokkrir hlutir að ganga upp svo að við komumst í hana, þannig að þetta er ekki alveg 100 %. En ef að við komumst ekki í hana í janúar þá verður hún í febrúar. En eins og þið sjáið hér að neðan þá er mikið innifalið í þessum penning.

Hér koma nokkur atriði um hana og hvað er innifalið í verðinu:
  • Hún myndi kosta ca. 9-10 þús
  • Við yrðum með stóran bíll fyrir okkur allan tíman
  • Það yrðu 3 æfingar ca. 50-75 mín (1 föstud, 1 laugard og 1 sunnud)
  • Það yrði 1 leikur 2 x 45 mín (laugardag)
  • 2 kvöldverðir (föstud og laugardag) og 2 hádegisverðir (laugard og sunnudag)
  • Aðgangseyrir í Blá Lónið (sunnudag)
  • 2 fundir, 1 um taktic og 1 um sálfræði og matarræði (laugard og sunnud)
  • Gisting í 2 nætur sennilega í Reykjaneshöllinni á 2 hæðinni
  • Sennilega einhver swingur á laugardagskvöldinu

En þessi ferð verður aldrei farinn nema að allar (flestar) kæmust með því að þetta er undirbúningur fyrir sumarið hjá okkur.

Nú er það spurningin hverjar komast ?

Ég er búinn að heyra frá eftirtöldum stelpum: Möggu M, Bergdísi, Hlíf, Ingó, Guðný og Rakel.

Kveðja Teddi


Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, janúar 20, 2006

Allt að gerast...... 

Jæja stelpur


Var að fá í hendurnar tilboð um að koma til Keflavíkur næstu helgi (27.-29.jan). Þar myndum við fara saman á bíl sem að við myndum leigja, gista (2 x), æfa (3 x), funda (2 x), spila æfingaleik (1) og gera eitthvað skemmtilegt (99) fyrir utan boltan td: singstarkeppni, horfa á mynd sama, sund og fara í koddaslag (ég á móti ykkur). Ég er aðeins að skipuleggja þetta og áður en að ég geri það þá þarf ég að sjá hverjar komast með okkur. Því bið ég ykkur um að skrifa í comments hvort að þið komist þessa helgi, sem fyrst. Við förum ekki nema að sem flestar komist með og þið getið reiknað með því að þetta kosti ca 8-10 þús pr/mann með þessu og einhverjum mat (allavena ekki meira en þetta).

Ég tek það sérstaklega fram að æfingarnar og leikurinn yrði í Reykjaneshöllinni.....


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Alltaf hressir...... 

Jæja stelpur


Þær sem voru á æfingu vita af því að Beta (litla) ætlar að hvíla sig á fótbolta um óákveðin tíma. Við eigum eftir að sakna hennar, því að eins og þið vitið þá er þarna á ferð góður leikmaður. En hún lofaði okkur að fara ekki í annað félag þegar að hún sagði okkur frá þessu, enda spurði ég hana strax hvort að hún væri að fara í HK/Víking, en hún neitaði því. Þannig að það er ekkert þannig í gangi sem betur fer en eins og hefur komið fram þá munu nokkrar stelpur úr 2.flokki fara með mfl.kvk í æfingarferð til Spánar 1.-8. apríl og átti Beta að vera í þeim hópi. Við hjá Val höfum mikið álit á henni og vonum að hún komi aftur hress og kát. Þeir sem ekki vissu það þá tók Beta þátt í Evrópuævintýrinu hjá mfl.kvk þar sem að þær lentu í 8. sæti, vegna þess að við sáum þarna framtíðar leikmann mfl.kvk hjá Val.
-

En það verður enginn æfing hjá 2.fl.kvk í dag, þannig að næsta æfing verður á sunnudaginn á KR-vellinum kl 14:30-16:00. En munið að fara í Sporthúsið...............ég er búinn að senda á ykkur prógramið á netföngin ykkar.
-

Ef þið lendið í vandræðum með prógramið verið þá í bandi við Orra.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Alltaf hressir 

Jæja stelpur

Þær sem voru á æfingu vita af því að Beta (litla) ætlar að hvíla sig á fótbolta um óákveðin tíma. Við eigum eftir að sakna hennar, því að eins og þið vitið þá er þarna á ferð góður leikmaður. En hún lofaði okkur að fara ekki í annað félag þegar að hún sagði okkur frá þessu, enda spurði ég hana strax hvort að hún væri að fara í HK/Víking, en hún neitaði því. Þannig að það er ekkert þannig í gangi sem betur fer en eins og hefur komið fram þá munu nokkrar stelpur úr 2.flokki fara með mfl.kvk í æfingarferð til Spánar 1.-8.apríl og átti Beta að vera í þeim hópi. Við hjá Val höfum mikið álit á henni og vonum að hún komi aftur hress og kát. Þeir sem ekki vissu það þá tók Beta þátt í Evrópuævintýrinu hjá mfl.kvk þar sem að þær lentu í 8. sæti, vegna þess að við sáum þarna framtíðar leikmann mfl.kvk hjá Val.
-
En það verður enginn æfing hjá 2.fl.kvk á morgun, þannig að næsta æfing verður á sunnudaginn á KR-vellinum kl 14:30-16:00. En munið að fara í Sporthúsið...............ég er búinn að senda á ykkur prógramið á netföngin ykkar. Ef þið lendið í vandræðum verið þá í bandi við Orra.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Nýjustu fréttir frá Hlíðarenda....... 

Jæja stelpur

Æfingin í kvöld er í Egilshöll. Málið er að þið (allar) eigið að mæta kl 21:00 og hlaupið á undan í 30 mín og ekki koma of seint.
-
Í gær spilaði meistaraflokkurinn við Keflavík í Reykjaneshöllinni. Hef voðalega fátt að segja um leikinn nema að Keflavík ógnaði markinu okkar mjög lítið. En í þessum leik komu við sögu 2 stelpur úr 2.flokki, þær Magga og Hlíf. Stóðu þær sig mjög vel í leiknum en Hlíf spilaði hægri bakvörð og Magga spilaði vinstri bakvörð. Flott hjá ykkur stelpur.

Dagskráin hjá okkur:

Fimmtudagurinn 19.jan, Egilshöll (inni)
kl 20:45, byrja að hlaupa inni í Egilshöll
kl 21:30-23:00, æfing með 2.flokki

Föstudagurinn 20.jan, Egilshöll (inni)
kl 19:30, byrja að hlaupa inni í Egilshöll
kl 20:00-21:30
-
-
Ég veit ekki hvernig sunnudagurinn verður en ég hef hugsað að hafa kopar frænda á laugardaginn en nánar um það síðar. Það á að fara að hita KR-völlinn betur upp þannig að við eigum eki að þurfa að fela niður æfingar vegna ófærðar á vellinum í framtíðinni.
-
Munið að lesa greinina sem að ég setti inn um daginn.......
-
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Æfing í kvöld í Egilshöll....... 

Jæja stelpur

Æfingin í kvöld er í Egilshöll. Málið er að þið (allar) eigið að mæta kl 21:00 og hlaupið á undan í 30 mín og ekki koma of seint.
-
Í gær spilaði meistaraflokkurinn við Keflavík í Reykjaneshöllinni. Hef voðalega fátt að segja um leikinn nema að Keflavík ógnaði markinu okkar mjög lítið. En í þessum leik komu við sögu 2 stelpur úr 2.flokki, þær Magga og Hlíf. Stóðu þær sig mjög vel í leiknum en Hlíf spilaði hægri bakvörð og Magga spilaði vinstri bakvörð. Flott hjá ykkur stelpur.
-
-
Fimmtudagurinn 19.jan, Egilshöll (inni)
kl 20:45, byrja á því að hlaupa inni í Egilshöll
kl 21:30-23:00, æfing með 2.flokki
-
-
Ég veit ekki hvernig sunnudagurinn verður en ég hef hugsað að hafa kopar frænda á laugardaginn en nánar um það síðar. Það á að fara að hita KR-völlinn betur upp þannig að við eigum eki að þurfa að fela niður æfingar vegna ófærðar á vellinum í framtíðinni.
-
Munið að lesa greinina sem að ég setti inn um daginn.......


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Síða sem allir geta bloggað inná..... 

Jæja stelpur

Snædís, Beta og Stella langar að koma í gagnið síðu sem að þær voru með í fyrra. Hugsunin er að þið fáið allar inngang inn á síðuna og að þið getið bloggað. Þetta er gott framtak og tökum allar þátt í þessu, linkurinn er eftirfarandi:

http://blog.central.is/valur2kv


Með kveðju Teddester

Comments: Skrifa ummæli

Dagskráin í dag er á þessa leið.........gjörið svo vel 

Jæja stelpur

Eins og veðurfarið hefur verið síðustu dag þá eru aðstæðurnar á KR-vellinum ekki góðar. Ég talaði við þjálfara hjá KR sem heitir Heiðar Birnir og hann sagði að maður gæti bara sleppt þvi að hafa æfingu vegna aðstæðna. Það er akkurat sem að við gerum að þessu sinni.
-
En það er einhver með lyklanna að Valsheimilinu sem að ég lét leikmann fá á sunnudaginn. Spurning dagsins er hver er með þá ?


Dagskráin er á þessa leið:


Þriðjudagurinn 17.jan, Íslandi

kl 18:00-19:30 verðum við í Sporthúsinu
kl 19:45-22:00 þá verðum við í bíó annaðhvort Smárabió eða Sambíóinu Álfabakka.


Þó að það sé ekki æfing og ef að þið komist ekki með okkur þá verðið þið að fara út að hlaupa, ekki spurning. Það er undir ykkur komið hvernig árangri þið ætlið að ná.



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, janúar 15, 2006

Það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar. 

Jæja stelpur

Ég vill hrósa ykkur fyrir frábæra frammistöðu í dag á Íslandsmótinu innanhús, allar með tölu. Það var áberandi í dag hvað við spiluðum með höfðinu, þar sem að við gerðum hlutina rétt og ákveðið. En nú er þetta búið og úrslitakeppnin er næst á dagskrá hjá okkur en því miður er ekki kominn dagsetning á hana.

Skoðið fréttina á valur.is.............

Ég vill bjóða Anítu velkomna til okkar en hún skrifaði undir félagskipti í Val í dag.

Sigurvegarar í SPARK í dag voru þjálfararnir Teddi og Bjössi, til hamingju strákar. En þeir byrjuðu nokkrum umferðum á eftir hinum liðunum en unnu samt.

En ef að það heldur áfram að snjóa þá er ekkert víst að það verði hefbundinn æfing á þriðjudaginn. Þess vegna þurfið þið að fylgjast vel með blogginu.

Annars verður hún kl 20:00 í Frostaskjóli til kl 22:00.


En munið að fylgjst með blogginu......


Með kveðju Teddi (1 af 2 sem vann í Spark)

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, janúar 13, 2006

Jæja stelpur

Eftir samtal sem að ég átti við nokkra leikmenn í 2.fl.kvk í gær þá eru skilaboðin frá mér til ykkar. Lesið þessa grein og lærið hana utan af, það verður próf úr henni......


Inngangur
Þessi grein er þýdd og er eftir , Rick Newkirk. Rick er yfirþjálfari St. Louis Comets AAU Girl's Basketball Club, kvennaliðs í körfubolta.
-
Andlegt viðhorf
Hvað gerir góðan leikmann stórkostlegan? Stærðin, styrkurinn, skottæknin, hraðinn eða snerpan? Ég trúi því að það sé viðhorf hans? Eiginleiki þeirra er að sætta sig við umhverfið og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Þeir sem eru vanir að tapa (losers) virðast aldrei skilja af hverju þeir töpuðu. Þeir skella skuldinni á dómarana, völlurinn lélegur eða íþróttahúsið lélegt, samherjarnir og fleiri utanaðkomandi ástæður. Þeir sem eru vanir að sigra (winners) spila hins vegar af sér öll vandamál. Einu sinni var spurt um hvað það væri sem skipti mestu máli í körfuknattleik? "Það er án efa 15 cm. svæðið á milli eyrna þinna". Sigurinn fellur þeim í skaut sem halda einbeitingu. Góðir leikmenn láta aldrei andstæðingana eða utanaðkomand áhrif stjórna leiknum. Þeir eru andlega sterkir og í góðu andlegu ástandi. Það er auðvelt að missa stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þeim meiri tíma sem þú eyðir í að spá í þá hluti sem gengu ekki upp, því fleiri hlutir hætta að ganga upp. Ég get ekki talið þau skipti sem ég hef séð leikmenn missa boltann og svo stjórn á skapi sínu vegna þess að andstæðingurinn uppnefndi mömmu hans. Ef andstæðingur getur haft slík áhrif á leikmann þá spyr ég, hvor vinnur leikinn? Strax og þú hefur misst stjórn á skapi þínu ertu búinn að missa stjórn á þínum leik og öllu er beint gegn þér, dómarinn dæmir á þig, þú skorar ekki úr dauðafærinu, þetta er eins og með borgararstríð, strax og það er búið þá verða þeir HISTORY ( gleymt og grafið).
-
Íþróttamannleg framkoma
Sýndu íþróttamannlega framkomu! Það er auðvelt að vera sigurvegari, en að bera höfuð hátt eftir erfitt tap setur þig í sérflokk. Góðir leikmenn taka aldrei tapi vel. Ef þú hefur lagt þig 110% fram en þú varst samt sigraður þá er enginn skömm fyrir því að hafa tapað. Sýndu þeim virðingu sem spiluðu betur þennan daginn. Lærðu af því og láttu það svo eiga sig. Virðingin sem þú öðlast frá andstæðingnum og áhorfendum er vel þess virði.
-
Líkamsástand
Vertu í formi! Hetja er ekkert hugrakkari en hinn venjulegi maður, en hetjan er hetja fimm mínútur lengur en hinn venjulegi. Eyddu eins miklum tíma í umhyggju um líkamann eins og þú eyðir í leikinn sjálfan. Borðaðu góðan mat, sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld, hlauptu þrisvar í viku, forðist áfengi, tóbaki og eiturlyf. Að æfa einn er ekki auðvelt, en eins og þjálfarinn Lombardi sagði, hreyfingarleysi gerir okkur að hugleysingja. Að tapa leik á síðasta stundarfjórðungnum vegna lélegs þols er ófyrirgefanlegt. Ef þú tapar leik gangtu þá úr skugga um að andstæðingurinn hafi leikið betur en þið, ekki aðeins sigrað á betra formi.
-
Ekki búið fyrr en það er búið.
Gefstu aldrei upp! Sigurvegari gefst aldrei upp. " Sá sem sigrar hefur oft verið talinn búinn að vera, en þeir heyrðu einfaldlega ekki í dómaranum" (Jansen). Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Ekkert er ógerlegt ef þú trúir. Þú verður hissa á því hvað getur gerst ef þú gefst aldrei upp.
-
Skuldbinding og hörð vinna
Leggið mikla vinnu á ykkur og verið áköf. Láttu aldrei vanta baráttu og vilja. Það lið sem er harðfylgið kemur yfirleitt út sem sigurvegari. Sýnið eldmóð! Íþrótt eða eitthvað annað er ekki vinna, nema að þú viljir gera eitthvað annað. Skuldbindið ykkur til að skara fram úr, þú getur alltaf bætt við. Þegar stórafrek gærdagsins eru enn þá stór í dag, þá hefurðu ekki gert mikið í dag. Það er enginn skiptimaður til að fara á æfingu. Ekki telja dagana... láttu hvern dag telja. Eini maðurinn sem heldur þér á varamannabekknum og frá byrjunarliðinu......ert þú! .
-
Samherjar
Góðir leikmenn gagnrýna sjálfa sig, ekki liðsfélagana. Allir hafa tækifæri á að bæta sig og ná framförum, alveg sama í hvaða flokki þeir eru og það að tala um einhvern sem er kominn styttra á veg í þjálfun á aldrei eftir að hjálpa þér að bæta leik þinn. Mundu, að það er enginn "ÉG" í liði. Fylgstu með því sem liðsfélagar þínir eru að gera og áhugamálum þeirra, það hjálpar til við að ná betri árangri. Það tekur 11 leikmenn (fótbolti) að vinna saman til þess að niðurstaðan verði árangursrík eða eiginlega 17 ef bekkurinn er talin með.
-
Leiðtogi
Vertu aldrei hræddur við að stjórna. Ef einhver liðsmaður á í erfiðleikum þá á að hvetja hann áfram og koma honum á rétta braut. Á æfingum skaltu mæta fyrstur á völlinn en vertu síðastur til að yfirgefa hann. Spjallaðu á vellinum, stjórnaðu umferðinni, láttu vita ef einhver er í góðu færi eða þegar vörnin hefur opnast upp á gátt. Það sem þú sérð kannski skýrt í dag á annar erfitt með að sjá. Þú getur aldrei gengið að mótherja sem vísum, berðu virðingu fyrir hverjum og einum andstæðingi sem þú mætir og getu hans. Vertu leikmaður sem segir ég "get", fremur en leikmaður sem segir ég"get ekki". Ekkert stórafrek hefur verið gert án eldmóðs. Vertu fullkominn leikmaður!

Umhugsunarefni í lokin
Vertu harður! En taktu þig ekki of alvarlega þannig að þú gleymir að lykta af rósunum. Njóttu leiksins, mörg dæmi eru notuð í kennslustundum um lífið og tilveruna af íþróttafólki sem hefur gaman af og lært mikið af því að hlaupa á trégólfinu. Mundu, við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist fyrir utan íþróttirnar en við getum stjórnað því sem gerist þar fyrir innan. Vertu andlega sterkur, láttu aldrei hluti sem gerast inn á vellinum verða valdur af brotthvarfi þína af vellinum. Einbeyttu þér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum. Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín. Meistarar eru búnir til, þeir eru ekki fæddir meistarar. Eiginleikar geta komið þér á toppinn en það þarf karakter til að halda þér þar.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Hæ hó jibbí jei það er kominn snjór........ 

Jæja stelpur

Það er leikur hjá okkur í kvöld við mfl.kvk og munum við njóta aðstoðar stelpna úr 3.fl kvk. Við mætum þarna til að taka á þeim að sjálfsögðu, láta þær aðeins finna fyrir því er það ekki ?
-
Á sunnudaginn munum við svo spila í Íslandsmótinu innanhús og verður hópurinn tilkynntur á föstudaginn á æfingunni í Egilshöll. Það lítur ekki út fyrir að við séum að fara að spila æfingaleik innanhús vegna þess að þau lið sem að ég hef rætt við hafa enga tíma innanhús.
-
Ég fer fram á það við allar að mæta á sunnudaginn til að styðja þann hóp sem verður valinn því að eftir Ísl inni þá gerum við eitthvað skemmtilegt saman, nánar síðar. Svo að æfingin fellur niður á sunnudaginn.


Dagskráin hjá okkur er á þessa leið:

Fimmtudagurinn 12.jan, Egilshöll
mætar kl 21:00 og þetta verður til 23:00

Föstudaginn 13.jan, Egilshöll
kl 19:45-21:30

Sunnudagurinn 15.jan, Laugardalshöllin (Ísl. inni)
mæting kl 09:00, mæta með smá nesti (td. ávexti)

leikirnir eru: sjá link hægra meginn á síðunni >


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Leikurinn við meistaraflokk kvenna í kvöld. 

Jæja stelpur

Ég þarf að vita hverjar koma í kvöld í Egilshöllina kl 21:15-23:00. Ég veit af 2 leikmönnum sem eru tæpar vegna meiðsla og eru það Rakel og Magga.

Látið við hverjar komast.........


Kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, janúar 09, 2006

Vikan hjá okkur........ 

Jæja stelpur

Eins og þið vitið þá verður nóg að gera hjá okkur á næstunni. Íslandsmót næstu helgi, hópur tilkynntur í þessari viku. Æfingaleikur við mfl.kvk á fimmtudaginn þar sem að 3.fl.kvk munn leggja okkur lið að einhverju leyti. En nóg um það, svona lítur vikan út en þó getur hún breyst eitthvað vegna æfingarleikja innanhús, ef við náum þeim.

Dagskrá:

Þriðjudagurinn 10.jan, Frostaskjól (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig vel

Fimmtudagurinn 12.jan, Egilshöll
kl 21:15-23:00, æfingaleikur við mfl.kvk

Föstudagurinn 13.jan, Egilshöll
kl 19:45-21:30

Sunnudagurinn 15.jan, Laugardalshöll Íslandsmótið innanhús
mæting kl 09:00, hópurinn tilkynntur síðar


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Leikirnir við Ægir 

Jæja stelpur

Við fórum til Þorlákshafnar á laugardaginn til þess að spila við heimamenn (Ægir) innanhús. Við skiptum í 2 lið og spiluðu þau til skiptist. Það lögðu sig allir fram og verður erfitt að velja hópinn sem spilar í íslandsmótinu innanhús næstu helgi, en það kemur í ljós. En við unnum alla leikina nema 1 í Þorlákshöfn og kom oft upp gott spil á þessum litla velli. Við enduðum ferðina á því að fá okkur að borða í Skálanum í Þorlákshöfn. Þar sem pantað var fullt af hamborgurum, annars veit Hlíf allt um það mál :-)
-
Er ennþá að reyna að redda leik við Þrótt innanhús, nánar síðar. Og svo verða bráðum leikir við KR, Þrótt og sennilega Ægir utanhús.
-
Um helgina voru líka 3 leikmenn úr 2. flokk á landsliðsæfingu þ.e.a.s. 2 í U19 (Thelma og Guðný) og 1 í U17 (Magga). Stóðu þær sig með mestu ágætum en Magga meiddist á hné og vonum við að það sé ekki alvarlegt.
-
Nú styttist í kopar frænda og hlakkar mér til að sjá hvað kemur út úr þvi.
-
-
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, janúar 06, 2006

Helgin......... 

Jæja stelpur

Það er að að sjálfsögðu æfing í Egilshöllinni í kvöld föstudaginn 6.jan kl 19:45-21:30. Við erum búnar að taka dálítið á því sérstaklega þær sem hafa mætt á æfingar. Í kvöld koma stelpur til okkar frá 3.fl. og sennilega einhverjar frá mfl.kvk en það kemur í ljós.
-
En í sambandi við Þorlákshöfn þá ætlum við að leigja okkur bíl og fara saman til Þorlákshafnar. Þannig að það er mæting kl 12:45 í Egilshöll en þar er mfl.kvk æfing til kl 13:00 sem að ég er á. Ef þið viljið horfa á hana þá byrjar hún kl 11:30, ekki vitlaust. En það eiga allar að mæta með 1500.- kr og góða skapið, legghlífar og skó. Ég verð með settið sem að við spiluðum í síðast.
-
Svo að sjálfsögðu er æfing á sunnudaginn á venjulegum tíma í Frostaskjóli kl 14:30-16:00 en ég verð ekki á þeirri æfingu en það mæta þjálfarar ekki veitir af minna vegna fjarveru minnar :-).
-
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Geta, Ætla og Skal eða GÆS GÆS GÆS..... 

Jæja stelpur


Þá er Jólamót KRR búið og nú förum við að einbeita okkur að Íslandsmótinu innanhús sem fer fram í Laugardalshöllinni sunnudaginn 15.janúar.

Jólamótið

Ég var alveg ágætlega sáttur við mótið en leikmenn voru að gera allt of mörg mistök sem kostuðu okkur mark. Einnig vorum við að sækja á of fáum því oft kom það fyrir að öftustu 3 sátu eftir þegar að 1 af þeim átti að koma upp. Við vorum ekki að skila boltanum nægilega vel af okkur og rötuðu sendingarnar of oft á andstæðinganna. En vorum samt ekki að fá skelli en hefðu hæglega getað gert betur, er það ekki ?

Íslandsmótið innanhús

Ég legg mikla áherslu að við stöndum okkur í þessu móti og mætum ákveðnar til leiks. Til þess að undirbúa okkur á erum við sennilega komnar með æfingaleik við Ægir (Þorlákshöfn) á laugardaginn í höfninni og það er spurning hvernig við förum þangað, koma með hugmyndir. Svo er ég kominn með æfingaleik við Þrótt en dagsetninginn er ekki kominn á hreint en sennilega í næstu viku, nánar síðar.

Mæting á æfingar
Hún þarf að batna ef að við ætlum að ná árangri !!!!

Kopar frændi verður í þessum mánuði.....

Landsliðið

Ég vill óska stelpunum sem voru valdar í úrtakið hjá Landsliðinu til hamingju með árangurinn. Glæsilegt hjá Thelmu, Guðný, Möggu og Beggu B (3.fl) en þær voru valdar að þessu sinni.


Dagskráin:

Fimmtudagurinn 5.jan, Frostaskjól (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig vel og mæta á réttum tíma.

Föstudagurinn 6.jan, Egilshöll (inni)
kl 19:45-21:30

Laugardagurinn 7.jan. Þorlákshöfn ÆFINGALEIKUR VIÐ ÆGIR
Lagt af stað kl 13:00 frá Egislhöllinni á einkabílum, allar að koma með penning fyrir bensíni. En þetta byrjar kl 14:00 og er búið kl 16:00, Látið vita hverjar komast á bíl og hverjar komast í commentið.

Sunnudagurinn 8.jan, Frostaskjól (úti)
kl 14:30-16:00, klæða sig vel.



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, janúar 01, 2006

Nú byrjar það fyrir alvöru........ 

Kæru iðkendur og forráðamenn


GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG VIÐ ÞÖKKUM YKKUR FYRIR ÞAÐ LIÐNA


Það eru komnir nýjir linkar hér hægra megin á síðunna okkar með upplýsingum um mót á árinu 2006 hjá meistaraflokkum félagsins. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með meistaraflokkum félagsins, áfram Valur.

Munið:

Næsta æfing er á hinum frábæra degi 3.janúar á KR-vellinum kl 20:00 til kl 22:00 og munið að klæða ykkur vel



Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?