<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, janúar 20, 2006

Alltaf hressir...... 

Jæja stelpur


Þær sem voru á æfingu vita af því að Beta (litla) ætlar að hvíla sig á fótbolta um óákveðin tíma. Við eigum eftir að sakna hennar, því að eins og þið vitið þá er þarna á ferð góður leikmaður. En hún lofaði okkur að fara ekki í annað félag þegar að hún sagði okkur frá þessu, enda spurði ég hana strax hvort að hún væri að fara í HK/Víking, en hún neitaði því. Þannig að það er ekkert þannig í gangi sem betur fer en eins og hefur komið fram þá munu nokkrar stelpur úr 2.flokki fara með mfl.kvk í æfingarferð til Spánar 1.-8. apríl og átti Beta að vera í þeim hópi. Við hjá Val höfum mikið álit á henni og vonum að hún komi aftur hress og kát. Þeir sem ekki vissu það þá tók Beta þátt í Evrópuævintýrinu hjá mfl.kvk þar sem að þær lentu í 8. sæti, vegna þess að við sáum þarna framtíðar leikmann mfl.kvk hjá Val.
-

En það verður enginn æfing hjá 2.fl.kvk í dag, þannig að næsta æfing verður á sunnudaginn á KR-vellinum kl 14:30-16:00. En munið að fara í Sporthúsið...............ég er búinn að senda á ykkur prógramið á netföngin ykkar.
-

Ef þið lendið í vandræðum með prógramið verið þá í bandi við Orra.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?