<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Hæ hó jibbí jei það er kominn snjór........ 

Jæja stelpur

Það er leikur hjá okkur í kvöld við mfl.kvk og munum við njóta aðstoðar stelpna úr 3.fl kvk. Við mætum þarna til að taka á þeim að sjálfsögðu, láta þær aðeins finna fyrir því er það ekki ?
-
Á sunnudaginn munum við svo spila í Íslandsmótinu innanhús og verður hópurinn tilkynntur á föstudaginn á æfingunni í Egilshöll. Það lítur ekki út fyrir að við séum að fara að spila æfingaleik innanhús vegna þess að þau lið sem að ég hef rætt við hafa enga tíma innanhús.
-
Ég fer fram á það við allar að mæta á sunnudaginn til að styðja þann hóp sem verður valinn því að eftir Ísl inni þá gerum við eitthvað skemmtilegt saman, nánar síðar. Svo að æfingin fellur niður á sunnudaginn.


Dagskráin hjá okkur er á þessa leið:

Fimmtudagurinn 12.jan, Egilshöll
mætar kl 21:00 og þetta verður til 23:00

Föstudaginn 13.jan, Egilshöll
kl 19:45-21:30

Sunnudagurinn 15.jan, Laugardalshöllin (Ísl. inni)
mæting kl 09:00, mæta með smá nesti (td. ávexti)

leikirnir eru: sjá link hægra meginn á síðunni >


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?