<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Koma svo nú........ 

Jæja stelpur


Það verður því miður ekkert af Keflavíkurferðinni vegna þess að Lea sem er að þjálfa með mér í 5.fl.kvk er að fara til USA núna á miðvikudaginn og þess vegna getur enginn tekið æfingarnar fyrir mig hjá 5.fl.kvk. En við eigum eftir að fara í svona ferð, ekki spurning.
-
En það verður ekki æfing á í Frostaskjóli vegna þess að hann er ennþá lokaður en opnar á morgun miðvikudag aftur, þannig að það styttist í það að við spörkum í bolta aftur. Þannig að við bregðum á það ráð að fara í Egilshöllina til þess að hlaupa og gera styrktaræfingar en þær sem vilja geta farið í ræktina til þess að hlaupa og lyfta. Ég veit að Stella er búinn að vera rosalega dugleg að fara í ræktina, flott hjá þér Stella. En látið mig samt vita hvort þið ætlið að gera.
-

Dagskráin:

Þriðjudagurinn 24.jan, Egilshöll (inni)
mæting kl 20:00 og koma með hlaupaskó með ykkur. Við munum hlaupa og gera styrktaræfingar og ég reikna með að þið verðið búnar kl 21:00.

Fimmtudagurinn 26.jan, Frostaskjól, (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig vel

Föstudagurinn, 27.jan, ?
nánar síðar.....


Með kveðju Teddi

Comments:
"Football isn't just a sport, it's a way of life!"

luv :*
 
Það er rétt hjá þér Guðný
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?