<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Dagskráin næstu daga....... 

Jæja stelpur

Það er smá breytingar á æfingum hjá okkur núna næstu daga. Ég verð ekki með næstu 2 æfingarnar vegna ferðar minnar til Englands (mekka fótboltans). Æfinguna á laugardaginn verða Beta eða Óli með en æfinguna á þriðjudaginn verður einn vinur minn með sem er að þjálfa 4.fl.kk hjá Val en hann heitir Þorsteinn og er kallaður Steini. Ég mun hugsa til ykkar á meðan að ég er úti (NOT) he he he :-).

Næstu æfingar eru:

Laugardaginn 25.feb, Egilshöll
kl 11:15-13:00, með mfl.kvk

Þriðjudaginn 28.feb, Frostaskjól
kl 20:30-22:00, klæða sig vel


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins...... 

Jæja stelpur

Þá er komið að leik no. 3 í Reykjavíkurmótinu hjá mfl.kvk kl 19:00 í kvöld í Egilshöllinni og eins og stendur hér að ofan þá er það úrslitaleikurinn. Andstæðingar okkar að þessu sinni eru stelpurnar í Vesturbænum eða nánar tiltekið KR en við Valsarar eigum titil að verja í þessum leik því að við unnum þennan titil í fyrra. Það er greinilega verið að vinna vel í yngri flokkunum á Hlíðarenda því að það eru 8 leikmenn í hópnum úr 2.fl.kvk sem eiga að mæta í leikinn, til hamingju stelpur.

Þær sem eiga að mæta í leikinn í kvöld eru:
Fríða - Magga Pála - Gugga (GK) fyrirliði - Hlíf - Hallbera - Magga - Rut - Thelma - Rakel - Hafdís - Margrét Lára - Stella (GK) - Guðrún - Guðný - Laufey og Bára.

Stelpur sem eiga að mæta í leikin það er mæting kl. 17.50 í egilz en hinar stelpurnar í 2.fl eiga að mæta 17:30 í Egilshöllina og taka með sér hlaupaskó.

Þetta er bloggið hjá mfl.kvk, skoða reglulega: http://valurwoman.blogspot.com/

Sjáumst í kvöld..............


Kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Vörutalning..... 

Jæja stelpur

Nú þarf mfl.kvk á ykkar hjálp að halda. Nú hvernig spyrjið þið. Málið er að til þess að reka mfl.kvk þá þarf penninga og hugmyndin er að fá ykkar hjálp í það. Með því að mæta í vörutalningu hjá Bónus sem verður næstkomandi laugardag frá ca. kl 18:00 og eitthvað frameftir.

Endilega skrifið í "comment", látið vita hvernig ykkur líst á og hvort að það taka ekki allar þátt í þessu.....



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Næsta æfing hjá 2.fl.kvk 

Jæja stelpur

Eins og þið vitið þá er leikur á fimmtudaginn hjá mfl.kvk við KR í Reykjavíkurmótinu. Þetta er úrslitaleikur mótsins og við mætum allar til að hvetja stelpurnar okkar. Þannig að í staðin fyrir æfingu þá er mæting kl 17:30 í Egilshöllina með hlaupaskó og það verður skokkað. Sem sagt næsta æfing hjá 2.fl.kvk er á fimmtudaginn kl 17:30 í Egilshöll.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Æfingin í kvöld er .......... 

Jæja stelpur

Það er smá breyting á æfingunni í kvöld. Hún verður í Egilshöllinni og HEFST kl 21:00. Ég mæli með að þið komið með hlaupaskó með ykkur því að við byrjum á hlaupabrautinni.

Þriðjudagurinn 21.feb, Egilshöll
kl 21:00-22:00
En hópurinn sem hefur verið að æfa með mfl.kvk. verða áfram á æfingunni eða til kl 23:00


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, febrúar 20, 2006

Góð helgi eða hvað ........ 

Jæja stelpur

Það var tekið á því um helgina, er það ekki ? Við spiluðum í Úrslitakeppninni innanhús á sunnudaginn og lentum þar í 3 sæti mjög örugglega eftir sigur á Stjörnunni 4-2.

En smá um keppnina:

Mér fannst það frábært hjá ykkur að hittast á undan og byggja upp stemmingu, glæsilegt. Það er hægt að segja að það hafi tekist því að það sem að ég var mjög sáttur við var hugarfar leikmanna. Það greinilegt að leikmenn ætluðu sér að leggja sig fram fyrir liðið, fyrir hópinn. Leikmenn spiluðu mismikið en þannig er það þegar að maður er kominn upp í 2.fl, það er bara einn maður sem ræður hver spilar og það er þjálfarinn. En ég var mjög ánægður með þá leikmenn sem spiluðu ekki margar mín því að þeir voru mikilvægir fyrir hópinn.

Valur vs. Tindastóll 4-2, riðillinn
Mjög öruggur sigur þó að tölurnar segi annað en þarna mættum við tilbúnar í slaginn og yfirspiluðum Tindastóll.

Valur vs. Stjarnan 1-0, riðillinn
Þetta var æðislegur leikur til að vera þáttakandi í, þvílík barátta að það var hægt að segja að það hafi verið stríð á vellinum þar sem að enginn vildi gefa eftir. Í þessu leik fórum við illa með nokkur færi en vörnin hélt vel hjá okkur og það sem að fór í gegn lokaði Ingó markmaður fyrir með frábærum leik. En það sálst greinileg hvaða lið er vanari að spila á svona miklu tempói því að þegar að 3 mín voru eftir voru Stjörnustelpur gjörsamlega búnar á því. En við hefðum geta skorað fleiri mörk á þessum tímapunkti. En það sem setti ljótan blett á góðan leik var hegðun þjálfara Stjörnunar en það sem að hann gerði var honum til minnkunar, ekkert annað. Frábær leikur

Valur vs. Breiðablik 2-3, Undanúrslit
Þarna eftir langa bið komum við okkur aftur í stemmingu sem er ekki auðvelt eftir að hafa biðið hvað í nær 90 mín. En það tókst og við mætum tilbúnar í slaginn. Þetta var hörkuleikur mjög jafn og bæði liðin fengu færi til þess að skoar fleiri mörk. En við reyndum og reyndum alveg þangað til dómarinn flautaði til leiksloka. En því miður náðum við ekki að setja boltan í neti oftar að þessu sinni, en bíðið bara Blikastúlkur því að við erum ekki búnar að segja okkar síðasta (you can take that to the bank). Gott spil, mikil barrátta einkenndi þennan leik.

Valur vs. Stjarnan 4-2, um 3. sætið
Þarna var bara eitt lið á vellinum og Stjörnustelpurnar gjörsamlega búnar á því en ekki við. En og aftur sýndum við flottan leik og unnum Stjörnuna mjög sannfærandi.

Lokaorð

Það er ekki annað hægt að segja en að ég er stoltur af ykkur, því sem að þið lögðuð í keppnina, til hópsins og hvernig þið komuð fram á vellinum og fyrir utan hann. Þið voru félaginu til sóma og ég er stoltur af því að vera þjálfarinn ykkar. Til hamingju með frammistöðun á sunnudaginn, ég get ekki beðið ykkur um meira en mun samt reyna he he he he :-).

Næsta æfing er á:

Þriðjudaginn 21.fen, Frostaskjóli
kl 20:00-22:00


Með kveðju Teddi (Hugaði) he he he :-)

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, febrúar 17, 2006

Told you so.......... 

Jæja stelpur

Þetta var fínn fundur í dag hjá Betu. En á þessum fundi voru leikmenn mfl. og 2.fl. kvk en hann fór fram í húsi Guðs á Hlíðarenda eða Kapellunni.

Þarna talaði Beta um hugarfarið hjá leikmönnum og eins og kom fram á fundinum þá er það FRAMÚRSKARANDI mikilvægt. Þess vegna set ég þessa grein hér að neðan inn aftur og fer fram á að þið lesið hana nokkrum sinnu.

Þessa grein setti ég inn á bloggið þann 13.janúar síðastliðin


Inngangur
Þessi grein er þýdd og er eftir , Rick Newkirk. Rick er yfirþjálfari St. Louis Comets AAU Girl's Basketball Club, kvennaliðs í körfubolta.

Andlegt viðhorf
Hvað gerir góðan leikmann stórkostlegan? Stærðin, styrkurinn, skottæknin, hraðinn eða snerpan? Ég trúi því að það sé viðhorf hans? Eiginleiki þeirra er að sætta sig við umhverfið og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Þeir sem eru vanir að tapa (losers) virðast aldrei skilja af hverju þeir töpuðu. Þeir skella skuldinni á dómarana, völlurinn lélegur eða íþróttahúsið lélegt, samherjarnir og fleiri utanaðkomandi ástæður. Þeir sem eru vanir að sigra (winners) spila hins vegar af sér öll vandamál. Einu sinni var spurt um hvað það væri sem skipti mestu máli í fótboltaleik? "Það er án efa 15 cm. svæðið á milli eyrna þinna". Sigurinn fellur þeim í skaut sem halda einbeitingu. Góðir leikmenn láta aldrei andstæðingana eða utanaðkomand áhrif stjórna leiknum. Þeir eru andlega sterkir og í góðu andlegu ástandi. Það er auðvelt að missa stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þeim meiri tíma sem þú eyðir í að spá í þá hluti sem gengu ekki upp, því fleiri hlutir hætta að ganga upp. Ég get ekki talið þau skipti sem ég hef séð leikmenn missa boltann og svo stjórn á skapi sínu vegna þess að andstæðingurinn uppnefndi mömmu hans. Ef andstæðingur getur haft slík áhrif á leikmann þá spyr ég, hvor vinnur leikinn? Strax og þú hefur misst stjórn á skapi þínu ertu búinn að missa stjórn á þínum leik og öllu er beint gegn þér, dómarinn dæmir á þig, þú skorar ekki úr dauðafærinu, þetta er eins og með borgararstríð, strax og það er búið þá verða þeir HISTORY ( gleymt og grafið).

Íþróttamannleg framkoma
Sýndu íþróttamannlega framkomu! Það er auðvelt að vera sigurvegari, en að bera höfuð hátt eftir erfitt tap setur þig í sérflokk. Góðir leikmenn taka aldrei tapi vel. Ef þú hefur lagt þig 110% fram en þú varst samt sigraður þá er enginn skömm fyrir því að hafa tapað. Sýndu þeim virðingu sem spiluðu betur þennan daginn. Lærðu af því og láttu það svo eiga sig. Virðingin sem þú öðlast frá andstæðingnum og áhorfendum er vel þess virði.

Líkamsástand
Vertu í formi! Hetja er ekkert hugrakkari en hinn venjulegi maður, en hetjan er hetja fimm mínútur lengur en hinn venjulegi. Eyddu eins miklum tíma í umhyggju um líkamann eins og þú eyðir í leikinn sjálfan. Borðaðu góðan mat, sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld, hlauptu þrisvar í viku, forðist áfengi, tóbaki og eiturlyf. Að æfa einn er ekki auðvelt, en eins og þjálfarinn Lombardi sagði, hreyfingarleysi gerir okkur að hugleysingja. Að tapa leik á síðasta stundarfjórðungnum vegna lélegs þols er ófyrirgefanlegt. Ef þú tapar leik gangtu þá úr skugga um að andstæðingurinn hafi leikið betur en þið, ekki aðeins sigrað á betra formi.

Ekki búið fyrr en það er búið
Gefstu aldrei upp! Sigurvegari gefst aldrei upp. " Sá sem sigrar hefur oft verið talinn búinn að vera, en þeir heyrðu einfaldlega ekki í dómaranum" (Jansen). Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Ekkert er ógerlegt ef þú trúir. Þú verður hissa á því hvað getur gerst ef þú gefst aldrei upp.

Skuldbinding og hörð vinna
Leggið mikla vinnu á ykkur og verið áköf. Láttu aldrei vanta baráttu og vilja. Það lið sem er harðfylgið kemur yfirleitt út sem sigurvegari. Sýnið eldmóð! Íþrótt eða eitthvað annað er ekki vinna, nema að þú viljir gera eitthvað annað. Skuldbindið ykkur til að skara fram úr, þú getur alltaf bætt við. Þegar stórafrek gærdagsins eru enn þá stór í dag, þá hefurðu ekki gert mikið í dag. Það er enginn skiptimaður til að fara á æfingu. Ekki telja dagana... láttu hvern dag telja. Eini maðurinn sem heldur þér á varamannabekknum og frá byrjunarliðinu......ert þú! .

Samherjar
Góðir leikmenn gagnrýna sjálfa sig, ekki liðsfélagana. Allir hafa tækifæri á að bæta sig og ná framförum, alveg sama í hvaða flokki þeir eru og það að tala um einhvern sem er kominn styttra á veg í þjálfun á aldrei eftir að hjálpa þér að bæta leik þinn. Mundu, að það er enginn "ÉG" í liði. Fylgstu með því sem liðsfélagar þínir eru að gera og áhugamálum þeirra, það hjálpar til við að ná betri árangri. Það tekur 11 leikmenn (fótbolti) að vinna saman til þess að niðurstaðan verði árangursrík eða eiginlega 17 ef bekkurinn er talin með.

Leiðtogi
Vertu aldrei hræddur við að stjórna. Ef einhver liðsmaður á í erfiðleikum þá á að hvetja hann áfram og koma honum á rétta braut. Á æfingum skaltu mæta fyrstur á völlinn en vertu síðastur til að yfirgefa hann. Spjallaðu á vellinum, stjórnaðu umferðinni, láttu vita ef einhver er í góðu færi eða þegar vörnin hefur opnast upp á gátt. Það sem þú sérð kannski skýrt í dag á annar erfitt með að sjá. Þú getur aldrei gengið að mótherja sem vísum, berðu virðingu fyrir hverjum og einum andstæðingi sem þú mætir og getu hans. Vertu leikmaður sem segir ég "get", fremur en leikmaður sem segir ég"get ekki". Ekkert stórafrek hefur verið gert án eldmóðs. Vertu fullkominn leikmaður!

Umhugsunarefni í lokin
Vertu harður! En taktu þig ekki of alvarlega þannig að þú gleymir að lykta af rósunum. Njóttu leiksins, mörg dæmi eru notuð í kennslustundum um lífið og tilveruna af íþróttafólki sem hefur gaman af og lært mikið af því að hlaupa á trégólfinu. Mundu, við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist fyrir utan íþróttirnar en við getum stjórnað því sem gerist þar fyrir innan. Vertu andlega sterkur, láttu aldrei hluti sem gerast inn á vellinum verða valdur af brotthvarfi þína af vellinum. Einbeyttu þér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum. Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín. Meistarar eru búnir til, þeir eru ekki fæddir meistarar. Eiginleikar geta komið þér á toppinn en það þarf karakter til að halda þér þar.

Ég vill benda ykkur á linkinn "Íþróttasálfræði" hægra megin á síðunni okkar, góð lesning.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Næst á dagskrá er..... 

Jæja stelpur

Næst á dagskrá hjá okkur er æfing á laugardaginn kl 14:30 í Frostaskjóli. Æfingin á sunnudaginn fellur niður vegna Úrslitakeppninar innanhús.


Kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Í kvöld er leikur no 2 í....... 

Jæja stelpur
-
Þá er komið að leik no. 2 í Reykjavíkurmótinu hjá mfl.kvk. Eins og stendur hér að ofan þá er hann í kvöld kl 19:00. Þið fáið sama verkefnið og í síðasta í 2.fl.kvk sem að þið eigið að leysa hvort sem að þið eruð í hópnum eða ekki. Það er smá munur á núna, því að þið eigið að senda mér skýrsluna ykkar úr síðasta leik og þessum á meili til mín teddy@internet.is . En eins og þið sjáið þá eru 8 leikmenn í hópnum úr 2.fl.kvk sem eiga að mæta í leikinn, til hamingju stelpur.

Þær sem eiga að mæta í leikinn í kvöld eru:
Ásta - Fríða - Gugga (GK) - Hlíf - Hallbera - Magga - Rut - Thelma - Rakel - Margrét Lára - Guðrún - Guðný - Laufey - Hafdís - Dóra - Stella (GK) - Magga Pála og Bára.

Mæting kl. 17.50 í egilz

Þetta er bloggið hjá mfl.kvk, skoða reglulega: http://valurwoman.blogspot.com/


Sjáumst í kvöld..............

Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Já, svona er lífið..... 

Jæja stelpur

Flott æfing hjá okkur á sunnudaginn. Munið að ég er alltaf að prófa ykkur, hvernig þið bregðist við mótlæti og öðrum aðstæðum. Hvernig þið bregðist við getur ráðið úrslitum hjá okkur í sumar. En munið að fara sjálfar í Sporthúsið og lyfta.

Næsta æfing:

Þriðjudaginn 12.feb, Frostaskjól (úti)
kl 20:15-22:00, klæða sig vel

Fimmtudaginn 14.feb, Enginn æfing
Leikur hjá mfl.kvk í Reykjavíkurmótinu við Fylki kl 19:00 í Egilshöll.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Flottur sigur í Reykjavíkurmótinu hjá mfl 

Jæja stelpur

Þetta var flottur sigur hjá mfl.kvk í Reykjavíkurmótinu á föstudaginn og eins og áður hefur komið fram þá voru 7 leikmenn úr 2.fl.kvk í leikmannahópnum. En áfram með smjörið og það verður æfing í dag (sunnudag).

Ég er reyndar að fara út að borða í dag (sunnudag) þannig að það getur verið að ég komi aðeins of seint. Við erum nefnilega að fara að kveðja Dóru Stéfáns sem er að fara spila með Malmö í Svíþjóð.

Sunnudagurinn 12.feb, Frostaskjól
kl 14:30-16:00


KVeðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Fjölnir vs. Valur á föstudaginn í Egilshöll 

Þá er komið að leik no. 1 í Reykjavíkurmótinu hjá mfl.kvk. Eins og stendur hér að ofan þá er hann á föstudaginn. Ég er búinn að leggja ákveðið verkefni til ykkar í 2.fl.kvk sem að þið eigið að leysa hvort sem að þið eruð í hópnum eða ekki. En eins og þið sjáið þá eru 7 leikmenn í hópnum úr 2.fl.kvk sem eiga að mæta í leikinn, til hamingju stelpur.

Þær sem eiga að mæta í leikinn á föstudag eru:

Ásta - Fríða - Gugga - Hlíf - Hallbera - Magga - Thelma - Rakel - Margrét Lára - Guðrún - Guðný - Laufey - Hafdís - Dóra - Magga Pála og Bára.

Mæting kl. 18.00 í egilz


Þetta er bloggið hjá mfl.kvk, skoða reglulega: http://valurwoman.blogspot.com/



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Æfing fimmtudag...... 

Það er æfing fimmtudaginn 9.feb, Frostaskjól
-
kl 20:30-22:00
-
Skoðið verkefnið sem að ég setti ykkur fyrir hér að neðan......
-
Látið vita ef að þið komist ekki á æfinguna
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Ja, hérna hér...... 

Jæja stelpur

Það verður ekki farið til Keflavíkur vegna þess að það komast ekki allar með. En í staðin munum við halda fund um helgina (taktík) og gera eitthvað saman, það er svo gaman he he he :-). En það er leikur hjá mfl.kvk á föstudaginn í Reykjavíkurmótinu kl 19:00 í Egilshöll við Fjölni. Þið eigið að mæta á leikinn og taka út leik mfl.kvk á föstudaginn því að við munum fara yfir hann á fundinum þannig mætið með blöð og skriffæri. Svo merkið þið blöðin og skilið þeim til mín og við munum fara yfir þetta saman.

Hlutir sem að þið eigið að fylgjast með eru eins og:

  1. Hvaða kerfi eru þær að spila sóknarlega og svo varnarlega
  2. Gekk kerfið upp hjá þeim (rökstyðja)
  3. Hvernig spiluðu andstæðingarnir á móti þeim (kerfi)
  4. Hvernig stóðu leikmenn sig
  5. Hvernig dekkuðu þær í föstum leikatriðum
  6. Hvernig leystu þær föstu leikatriðin (hörn og aukaspyrnur)
  7. Hver bar boltan upp hjá liðinu
  8. Hver voru algengustu misstökin hjá þeim
  9. Voru mikil samskipti á vellinum
  10. Hvernig stóð vörnin sig
  11. Hvernig stóð miðjan sig
  12. Hvernig stóð sóknin sig
  13. Hvernig stóð markmaðurinn sig
  14. Hvað má bæta hjá liðinu
  15. Hvað gerði liðið vel

-

Með kveðju Teddi


Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, febrúar 06, 2006

Það verður æfing..... 

Jæja stelpur

Það verður æfing með 3.fl.kvk í Safamýrinni kl 18:45-20:30, mánudaginn 6.feb. En í staðin verður frí á æfingunni á þriðjudaginn en ég fer fram á að þið farið út að hlaupa eða í ræktina.
-
Næsta æfing er á fimmtudaginn í Frostaskjóli kl 20:00-22:00, sjáumst hressar.

En hverjar myndu koma með til Keflavíkur um næstu helgi ef að við myndum fara þangað á föstudaginn og koma til baka á sunnudaginn. Kostnaðurinn yrði 10.000.- kr ef að þið viljið vita meira um hvað er innifalið þá skoðið bloggið aðeins aftur í tíman. Setjið það í comment hvort að þið komist eða ekki, sem fyrst.

Kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Frí sunnudag og sennilega æfing á mánudaginn. 

Jæja stelpur

Það er engin æfing á sunnudaginn en þið eigið að fara út að hlaupa eða í ræktina. En skoðið bloggið á morgun vegna þes að það verður sennilega æfing á Fram-vellinum með 3.fl.kvk. Vegna þess að ég er einn með mfl.kvk og æfingarnar stangast eru á sama tíma á þriðjudögum. Leikurinn á föstudaginn fór víst 10:3, nýjustu tölur.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

laugardagur, febrúar 04, 2006

Helgin hjá okkur..... 

Jæja stelpur

Það var virkilega gaman að sjá ykkur spila á móti KR á föstudaginn. Við stjórnuðum leiknum allan tíman og hleyptum KR aldrei inn í leikinn, þó að þær hafi náð að skora á okkur 3 mörk. Niðurstaðan 9-3 fyrir okkur. Ég sá hluti sem að við getum bætt okkur í eins og færslur á vellinum, en við förum yfir það.
-
Þær sem spiluðu leikinn voru:
Stella GK,Ingó GK, Magga Pála, Snædís, Rakel, Magga M, Lovísa, Bergdís, Bára, Hafdís og Guðný. Fengum lánaðar eftirfarandi úr 3.fl.kvk Thelma, Begga Gná, Anna María og Steinunn.
Markaskorarar:
Bergdís 3, Guðný 2, Rakel 1, Begga Gná 1, Magga M 1 og Thelma 1
-
Helgin hjá okkur:
-
Laugardagurinn 4.feb, Frostaskjól (úti)
kl 14:40-16:00, klæða sig vel
-
Sunnudagurinn 5.feb, Frostaskjól (úti)
kl 14:00-15:00, klæða sig vel
-
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Helgin hjá okkur..... 

Jæja stelpur

Það var virkilega gaman að sjá ykkur spila á móti KR á föstudaginn. Við stjórnuðum leiknum allan tíman og hleyptum KR aldrei inn í leikinn, þó að þær hafi náð að skora á okkur 3 mörk. Niðurstaðan 10-3 fyrir okkur. Ég sá hluti sem að við getum bætt okkur í eins og færslur á vellinum, en við förum yfir það.
-
Þær sem spiluðu leikinn voru:
Stella GK,Ingó GK, Magga Pála, Snædís, Rakel, Magga M, Lovísa, Bergdís, Bára, Hafdís og Guðný. Fengum lánaðar eftirfarandi úr 3.fl.kvk Thelma, Begga Gná, Anna María og Steinunn.
Markaskorarar:
Bergdís 4, Guðný 2, Rakel 1, Begga Gná 1, Magga M 1 og Thelma 1
-
Helgin hjá okkur:
-
Laugardagurinn 4.feb, Frostaskjól (úti)
kl 14:40-16:00, klæða sig vel
-
Sunnudagurinn 5.feb, Frostaskjól (úti)
kl 14:00-15:00, klæða sig vel
-
-
Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Næsta æfing er..... 

Jæja stelpur

Næsta æfing er á fimmtudaginn í Frostaskjólinu..........og svo er æfingaleikur á föstudaginn við KR í Frostaskjólinu og er mæting þar kl 17:30.

Dagskrá:

Fimmtudaginn 2.feb, Frostaskjól (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig vel

Föstudagurinn 3.feb, Frostaskjól (úti) ÆFINGALEIKUR
mæting kl 17:30 og byrjar leikurinn kl 18:30


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?