miðvikudagur, febrúar 08, 2006
Ja, hérna hér......
Jæja stelpur
Það verður ekki farið til Keflavíkur vegna þess að það komast ekki allar með. En í staðin munum við halda fund um helgina (taktík) og gera eitthvað saman, það er svo gaman he he he :-). En það er leikur hjá mfl.kvk á föstudaginn í Reykjavíkurmótinu kl 19:00 í Egilshöll við Fjölni. Þið eigið að mæta á leikinn og taka út leik mfl.kvk á föstudaginn því að við munum fara yfir hann á fundinum þannig mætið með blöð og skriffæri. Svo merkið þið blöðin og skilið þeim til mín og við munum fara yfir þetta saman.

Hlutir sem að þið eigið að fylgjast með eru eins og:
- Hvaða kerfi eru þær að spila sóknarlega og svo varnarlega
- Gekk kerfið upp hjá þeim (rökstyðja)
- Hvernig spiluðu andstæðingarnir á móti þeim (kerfi)
- Hvernig stóðu leikmenn sig
- Hvernig dekkuðu þær í föstum leikatriðum
- Hvernig leystu þær föstu leikatriðin (hörn og aukaspyrnur)
- Hver bar boltan upp hjá liðinu
- Hver voru algengustu misstökin hjá þeim
- Voru mikil samskipti á vellinum
- Hvernig stóð vörnin sig
- Hvernig stóð miðjan sig
- Hvernig stóð sóknin sig
- Hvernig stóð markmaðurinn sig
- Hvað má bæta hjá liðinu
- Hvað gerði liðið vel
-
Með kveðju Teddi
Comments:
Skrifa ummæli