<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, febrúar 17, 2006

Told you so.......... 

Jæja stelpur

Þetta var fínn fundur í dag hjá Betu. En á þessum fundi voru leikmenn mfl. og 2.fl. kvk en hann fór fram í húsi Guðs á Hlíðarenda eða Kapellunni.

Þarna talaði Beta um hugarfarið hjá leikmönnum og eins og kom fram á fundinum þá er það FRAMÚRSKARANDI mikilvægt. Þess vegna set ég þessa grein hér að neðan inn aftur og fer fram á að þið lesið hana nokkrum sinnu.

Þessa grein setti ég inn á bloggið þann 13.janúar síðastliðin


Inngangur
Þessi grein er þýdd og er eftir , Rick Newkirk. Rick er yfirþjálfari St. Louis Comets AAU Girl's Basketball Club, kvennaliðs í körfubolta.

Andlegt viðhorf
Hvað gerir góðan leikmann stórkostlegan? Stærðin, styrkurinn, skottæknin, hraðinn eða snerpan? Ég trúi því að það sé viðhorf hans? Eiginleiki þeirra er að sætta sig við umhverfið og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Þeir sem eru vanir að tapa (losers) virðast aldrei skilja af hverju þeir töpuðu. Þeir skella skuldinni á dómarana, völlurinn lélegur eða íþróttahúsið lélegt, samherjarnir og fleiri utanaðkomandi ástæður. Þeir sem eru vanir að sigra (winners) spila hins vegar af sér öll vandamál. Einu sinni var spurt um hvað það væri sem skipti mestu máli í fótboltaleik? "Það er án efa 15 cm. svæðið á milli eyrna þinna". Sigurinn fellur þeim í skaut sem halda einbeitingu. Góðir leikmenn láta aldrei andstæðingana eða utanaðkomand áhrif stjórna leiknum. Þeir eru andlega sterkir og í góðu andlegu ástandi. Það er auðvelt að missa stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þeim meiri tíma sem þú eyðir í að spá í þá hluti sem gengu ekki upp, því fleiri hlutir hætta að ganga upp. Ég get ekki talið þau skipti sem ég hef séð leikmenn missa boltann og svo stjórn á skapi sínu vegna þess að andstæðingurinn uppnefndi mömmu hans. Ef andstæðingur getur haft slík áhrif á leikmann þá spyr ég, hvor vinnur leikinn? Strax og þú hefur misst stjórn á skapi þínu ertu búinn að missa stjórn á þínum leik og öllu er beint gegn þér, dómarinn dæmir á þig, þú skorar ekki úr dauðafærinu, þetta er eins og með borgararstríð, strax og það er búið þá verða þeir HISTORY ( gleymt og grafið).

Íþróttamannleg framkoma
Sýndu íþróttamannlega framkomu! Það er auðvelt að vera sigurvegari, en að bera höfuð hátt eftir erfitt tap setur þig í sérflokk. Góðir leikmenn taka aldrei tapi vel. Ef þú hefur lagt þig 110% fram en þú varst samt sigraður þá er enginn skömm fyrir því að hafa tapað. Sýndu þeim virðingu sem spiluðu betur þennan daginn. Lærðu af því og láttu það svo eiga sig. Virðingin sem þú öðlast frá andstæðingnum og áhorfendum er vel þess virði.

Líkamsástand
Vertu í formi! Hetja er ekkert hugrakkari en hinn venjulegi maður, en hetjan er hetja fimm mínútur lengur en hinn venjulegi. Eyddu eins miklum tíma í umhyggju um líkamann eins og þú eyðir í leikinn sjálfan. Borðaðu góðan mat, sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld, hlauptu þrisvar í viku, forðist áfengi, tóbaki og eiturlyf. Að æfa einn er ekki auðvelt, en eins og þjálfarinn Lombardi sagði, hreyfingarleysi gerir okkur að hugleysingja. Að tapa leik á síðasta stundarfjórðungnum vegna lélegs þols er ófyrirgefanlegt. Ef þú tapar leik gangtu þá úr skugga um að andstæðingurinn hafi leikið betur en þið, ekki aðeins sigrað á betra formi.

Ekki búið fyrr en það er búið
Gefstu aldrei upp! Sigurvegari gefst aldrei upp. " Sá sem sigrar hefur oft verið talinn búinn að vera, en þeir heyrðu einfaldlega ekki í dómaranum" (Jansen). Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Ekkert er ógerlegt ef þú trúir. Þú verður hissa á því hvað getur gerst ef þú gefst aldrei upp.

Skuldbinding og hörð vinna
Leggið mikla vinnu á ykkur og verið áköf. Láttu aldrei vanta baráttu og vilja. Það lið sem er harðfylgið kemur yfirleitt út sem sigurvegari. Sýnið eldmóð! Íþrótt eða eitthvað annað er ekki vinna, nema að þú viljir gera eitthvað annað. Skuldbindið ykkur til að skara fram úr, þú getur alltaf bætt við. Þegar stórafrek gærdagsins eru enn þá stór í dag, þá hefurðu ekki gert mikið í dag. Það er enginn skiptimaður til að fara á æfingu. Ekki telja dagana... láttu hvern dag telja. Eini maðurinn sem heldur þér á varamannabekknum og frá byrjunarliðinu......ert þú! .

Samherjar
Góðir leikmenn gagnrýna sjálfa sig, ekki liðsfélagana. Allir hafa tækifæri á að bæta sig og ná framförum, alveg sama í hvaða flokki þeir eru og það að tala um einhvern sem er kominn styttra á veg í þjálfun á aldrei eftir að hjálpa þér að bæta leik þinn. Mundu, að það er enginn "ÉG" í liði. Fylgstu með því sem liðsfélagar þínir eru að gera og áhugamálum þeirra, það hjálpar til við að ná betri árangri. Það tekur 11 leikmenn (fótbolti) að vinna saman til þess að niðurstaðan verði árangursrík eða eiginlega 17 ef bekkurinn er talin með.

Leiðtogi
Vertu aldrei hræddur við að stjórna. Ef einhver liðsmaður á í erfiðleikum þá á að hvetja hann áfram og koma honum á rétta braut. Á æfingum skaltu mæta fyrstur á völlinn en vertu síðastur til að yfirgefa hann. Spjallaðu á vellinum, stjórnaðu umferðinni, láttu vita ef einhver er í góðu færi eða þegar vörnin hefur opnast upp á gátt. Það sem þú sérð kannski skýrt í dag á annar erfitt með að sjá. Þú getur aldrei gengið að mótherja sem vísum, berðu virðingu fyrir hverjum og einum andstæðingi sem þú mætir og getu hans. Vertu leikmaður sem segir ég "get", fremur en leikmaður sem segir ég"get ekki". Ekkert stórafrek hefur verið gert án eldmóðs. Vertu fullkominn leikmaður!

Umhugsunarefni í lokin
Vertu harður! En taktu þig ekki of alvarlega þannig að þú gleymir að lykta af rósunum. Njóttu leiksins, mörg dæmi eru notuð í kennslustundum um lífið og tilveruna af íþróttafólki sem hefur gaman af og lært mikið af því að hlaupa á trégólfinu. Mundu, við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist fyrir utan íþróttirnar en við getum stjórnað því sem gerist þar fyrir innan. Vertu andlega sterkur, láttu aldrei hluti sem gerast inn á vellinum verða valdur af brotthvarfi þína af vellinum. Einbeyttu þér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum. Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín. Meistarar eru búnir til, þeir eru ekki fæddir meistarar. Eiginleikar geta komið þér á toppinn en það þarf karakter til að halda þér þar.

Ég vill benda ykkur á linkinn "Íþróttasálfræði" hægra megin á síðunni okkar, góð lesning.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?