<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, mars 10, 2006

Alltaf hressir eða hvað....... 

Jæja stelpur

Það var æfing í gær hjá okkur á KR-vellinum, ef að þið vissuð það ekki. Það er mjög mikilvægt að þegar að þið komist ekki á æfingu að láta mig vita og er það óásættanlegt þegar að það er ekki gert. Einn ekki sáttur
-
Næsta æfing er á Laugardaginn í Egilshöllinni kl 10:30, svo munu nokkrar fara á mfl.kvk æfingu á eftir sem byrjar kl 11:15 til kl 13:00 og kemur það í ljós á laugardaginn hverjar það eru.

Sem sagt, svona er þetta hjá okkur:

Laugardagur 11.mars, Egilshöll
mæting kl 10:30, mæta með hlaupaskó

Sunnudagur 12.mars, Frostaskjól
mæting kl 14:00-16:00


Hér að neðan er tilkynning frá mfl.kvk


Kæru Valsarar !!

Við í mfl kvenna í knattspyrnu eru að safna fyrir æfingarferð sem við munum fara í byrjun apríl til La Manga á Spáni. Við munum keppa við tvö sterk norsk lið sem eru í úrvalsdeildinni og er Kolbotn annað liðið.Á sunnudaginn kemur, þann 12. mars, verðum við með flóamarkað í Kolaportinu frá kl 11-17. Þar verður margt í boði á prúttverði eins og t.d föt, skór, pennar, töskur, spilastokkar og margt fleira :)

Síðan erum við með Happdrætti í gangi þar sem glæsilegir vinningar eru í boði. Það voru gefnir út 1000 miðar og eru alveg 65 vinningar í boði og má nefna að í aðalvinning er utanlandsferð fyrir tvo með Icelandair.
-
Hægt er að skoða vinningana á www.happadraetti.blogspot.com.
-
Miðinn er á 1000 kr og verður dregið fimmtudaginn 16. mars nk. í Kolaportinu á sunnudaginn munum við vera með Happdrættismiðana með okkur þannig að ef þið viljið kaupa miða getið þið komið þangað...
-
Vonandi sjáum við sem flesta valsara í Kolaportinu á sunnudaginn

Með kærri þökk
Mfl kvenna í knattspyrnu :)

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?