miðvikudagur, mars 29, 2006
Leikurinn hjá okkur í gær.......
Jæja stelpur
Ég spyr bara hvernig ykkur líður eftir leikinn í gær ? Af hverju spyr ég ? Jú, vegna þess að manni líður alltaf vel þegar að maður er búinn að leggja á sig til að ná ákveðnum áfanga/sigri, er það ekki ? Þá spyr maður, af hverju leggja leikmenn sig ekki alltaf 100 % fram og gera það sem að er búið að leggja upp fyrir þá að gera ? Því er erfitt að svara en nú eruð þið búnar að kynnast báðu þ.e.a.s. hvernig það er þegar að liðið leggur sig fram við það sem það ætlar að gera eða ekki. Þarna sjáið þið að það er ástæða fyrir því að þjálfarar leggja upp ákveðna hluti fyrir leikina, allir leikmenn fá hlutverk sem að þeir eiga að skila og þeir gerðu það í gær, til hamingju Ísland eða nei til hamingju Valur :-).
Smá um framistöðu leikmanna í gær:
Markmenn
Stella virkaði mjög örugg í markinu í gær en það er það sem hefur vantað hjá henni
Ingó kom lítið við sögu en kom einbeit inná og datt strax inn í leikinn, það heyrðist meiri í henni
Vörn
Bentína stjórnaði vörninni eins og herforingi, frábær leikur hjá henni
Lovísa stóð sig mjög vel, lét teyma sig aðeins of mikið út úr vörninni en við lögum það
Lilja var mjög örugg og það var eins og hún væri búinn að spila með okkur lengi
Magga P lét teyma sig dálítið út úr línunni en stóðs sig mjög vel og var ákveðin
Guðlaug spilaði út úr stöðu en datt inn í hálfleik vegna meiðsla Möggu P, stóð sig mjög vel
Miðja
Hlíf kom vel út úr nýrri stöðu en var stundum of lengi að gefa boltan og ætlaði að gera of mikið
Magga átti MJÖG góðan leik en hefði viljað sjá fleiri skot frá henni
Bára stóð sig vel en það vantar upp á þolið sem er skiljanlegt vegna veikinda en það kemur
Vængmenn
Bergdís átti góðan leik með hraða sínum er hún bannvæn og má hún nýta sér hann betur
Aníta átti fínan leik en eins og Bára vantar svolítið upp á þolið en er búinn að vera veik
Begga Gná kom inn og gerði akkurat það sem að ég bað hana um og stóð sig mjög vel, ógnandi
Rakel fékk ekki margar mínútur og komst aldrei í takt við leikinn
Framherji
Thelma var með mjög góða vinnslu þarna frammi og hefði getað sett fleiri mörk, flottur leikur en aðeins of pirruð á köflum en um leið og pirringurinn fer þá kom fleiri mörk.
Það var gaman að sjá ykkur spila í gær bæði flæðið á boltanum og einbeitingin var til staðar enda stjórnuðum við leiknum allan tíma, fannst mér.
Það er leikur hjá mfl.kv á fimmtudaginn kl 21:00 á móti FH í Egilshöll, allar að mæta.
Næsta æfing hjá ykkur er á laugardaginn kl 11:15 í Egilshöll, það kemur áætlun fyrir næstu viku í dag eða á morgun. En eins og þið vitið þá verð ég á Spáni og ætlast ég til að þið mætið á þær æfingar sem að ég skrái hér á bloggið. En það væri gott ef að þið mynduð jogga smá í dag (sjálfar) og svo á morgun (fimmtudag) fara í ræktina og hlaupa 6 km með halla og lyfta.
Með kveðju Teddi

Comments:
Skrifa ummæli