<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 28, 2006

Leikurinn í kvöld.... 

Jæja stelpur

Við erum að fara að spila við HK/Víking í kvöld kl 20:30 á KR-vellinum. Það er mæting hjá okkur kl 19:00 í klefan og þar höldum við smá töflufund. Það koma 3 stelpur úr 3.fl og ætla að vera með okkur í þessum leik og þær eru: Begga Gná, Lilja og Gugga Trukkur
-
En reyndar kom sú hugmynd upp á síðustu æfingu að fara á Salatbar Eika í Skeifunni fyrir leik og byggja upp smá stemmingu. Talað var um að mæta þar kl 17:00 og borða saman og fara svo saman í Vesturbæinn.
-
Flott mál, en munið að leikurinn er löngu byrjaður og það er eins gott að vera á tánum í kvöld. Annars lendum við í öðrum Fjölnisleik og það er ekki í boði hjá okkur, er það ? En þið svarið því bara með því hvernig þið ætlið að spila í kvöld.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?