<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 29, 2006

Nú er komið að því, er það ekki ? 

Jæja stelpur

Það breytist eitthvað æfingarplanið í næstu viku og getur verið að við æfum á Tungubökkum (á grasi) en það kemur í ljós núna um helgina.

Það hefur ekki gengið nógu vel hjá U19 út í Rúmeníu en þær enduðu á því að vinna Rúmen 4-0 og skoraði Thelma Ýr 1 mark í þeim leik eftir að hafa komið inná. Ása og Guðný hafa spilað alla leikina en Thelma hefur ekki spilað eins mikið en það kemur að því.

Þær sem komust í hópinn fyrir úrslitaleik Deildarbikarsins úr 2.fl.kv eru Ingibjörg, Stella, Magga og Bentína, til hamingju með það. En leikurinn fer fram á sunnudaginn kl 16:30 í Egilshöll og er við Breiðablik. En það er mæting hjá áðurnefndu leikmönnum kl 15:00, stundvíslega.

Næsta æfing er á þriðjudaginn en er ekki vitað hvar né kl hvað, nánar síðar.


Með kveðju Teddi brúni

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?