<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 17, 2006

Alltaf hressir er það ekki ? 

Jæja stelpur

Nú eru prófin búinn og nú fer að fjölga á æfingum. Það var flott æfing í dag með mfl.kv á Hlíðarenda en við munum sennilega vera eitthvað á æfingum með þeim í sumar.

Nú styttist í leik no. 1 á Íslandsmótinu og verður hann 28.maí. Til þess að undirbúa okkur fyrir mótið ætlum við að spila æfingaleik á sunnudaginn kl 15:00-17:00 í Egislhöll. Ég er búinn að tala við KR og fæ svar frá honum á morgun hvort að þau komast. Ef að KR getur ekki spilað mun ég finna annað lið. Í þessum leik má búast við 2 nýjum andlitum, 1 nýju nýju og svo einu glænýju (stelpur fæddar 89).

Viskuorð dagsins eru:

Leiðtogar hugsa og ræða um lausnirnar, fylgjendur hugsa og tala um vandamálin


Dagskráin á næstunni:

Fimmtudagurinn 18.maí FRÍ (Silvía Nótt kemst ekki áfram)

Föstudagurinn 19.maí, Bíóferð
mæting kl 19:30 á American Style upp á Höfða (nálægt Ártúni) og verður ferðinni heitið í bíó. Setjið í commentin hverjir ætla að koma og Hlíf gerðu þetta rétt einu sinni :-)

Laugardagurinn 20.maí, Ullarvelli
kl 17:00-18:30, hittingur kl 16:50 við Kentucky í Mosó

Sunnudagurinn 21.maí, Egilshöll
mæting kl 14:15, leikurinn byrjar kl 15:00 og er til 17:00


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?