<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, maí 26, 2006

Jú jú alveg rétt hjá þér Bára mín..... 

Jæja stelpur

Æfingin í Egilshöllinni hjá ykkur í gær var mjög góð og flott stemming í hópnum. Eftir smá upphitun tókum við smá grunntækni, síðan flott sendingaræfingu, 1 á móti 1 í litlum kassa sem átti að klára með skoti, síðan tókum við skotæfingu, þar á eftir kom spil með mismörgum snertingum og síðan endaði þetta á vító þar sem að Magga Pála vann keppnina eftir langa úrslitarimu við mig (Tedda).

En það er æfing í kvöld í Egilshöll, sjáumst hressar þar.

Dagskrá:

Föstudagurinn 26.maí, Egilshöll
kl 20:00-21:30

Laugardagurinn 27.maí
Töflufundurinn verður ekki vegna þess að það eru svo margir út á landi.

Sunnudagurinn 28.maí, Fagrilundur
leikur HK/Víkingur - Valur og það er mæting kl 12:30


Munið að byrja að einbeita ykkur að leiknum á sunnudaginn. Hvernig ætla ég að gera þetta og hvernig ætla ég að bregðast við þessu.


Með kveðju Teddi

Comments:
Your are Nice. And so is your site! Maybe you need some more pictures. Will return in the near future.
»
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?