<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, maí 28, 2006

Sigur, sigur og sigur..... 

Jæja stelpur

Nú er fyrsti leikurinn hjá okkur í Íslandsmótinu búinn og var hann við systraklúbb okkar HK/Víking. Við mætum niður í Fagralund í dag og spiluðum þennan leik við góðar aðstæður, í flottu veðri og með alveg ágæta dómgæslu (gæinn hennar Leu). Þetta var einnig fyrsti leikurinn hennar Ásu með 2.fl.kv og á móti sínum gömlu félögum.

Liðið:
---------------Ása (gk)--------------
Magga Pála - Magga M - Bára - Aníta
----------------Hlíf------------------
--------Bentína (f) - Hafdís----------
Rakel------------------------Bergdís
-----------Thelma Björk------------
Bekkurinn:
Ingó (gk)
Krístín (3.fl.)
Þorgerður E. (3.fl.)
Kristrún E. (3.fl.)
Guðlaug R. (3.fl.)

Leikskýrsla: http://www.ksi.is/mot/motalisti/leikskyrsla/?Leikur=131764

Staðan: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=12844


Í fyrrihálfleik skoruðum við (Thelma Björk) flott mark eftir góðan undirbúning frá Hafdísi og fleiri liðsfélögum en þá var í gangi einnarsnertingarbolti og vel klárað. Vorum stressaðar og dálítið óöruggar en þrátt fyrir það komu góðir spila kaflar þar sem að boltinn fór vel á milli manna.

Í hálfleik var staðan 0-1 okkur í hag þá gerðum við 1 skiptingu og skiptum Thelmu útaf sem var búinn að standa sig vel þrátt fyrir að hafa spilaði leik með 3.fl.kv í gær. En inná kom Guðlaug og færði ég Hlíf upp í centerinn og setti Guðlaugu sem djúpan miðjumann.

Við urðum fyrir miklu óláni í dag því að Bergdís meiddist á 53 mín og kom ekki meira við sögu í þessum leik en vonum að hún nái sér fljót því að þarna er mikilvægur leikmaður á ferð, inná fyrir hana kom Kristín og tók hún hennar stöðu á vinstri kanntinum. En HK/Víkingsstelpurnar komu ákveðnar til leiks og ætluðu sér að jafna leikinn og á 61 mín skoruðu þær með hjálp okkar því að sú sem skoraði var tækluð en það tókst ekki betur til að boltinn var tæklaður í hana og inn fór hann en samt, sanngjarnt fannst mér. Þegar að þær jöfnuðu þá hræddist ég mikið og bjóst við brotlendingu dagsins. En eftir þetta hættuð þið aldrei og börðust allir fyrir liðið sitt og það var unnaður að sjá hvað allir lögðu sig fram. Þið börðust um alla bolta og það var eins og liðið ætlaði sér ekki að fara bara með 1 stig frá þessu leik og sú varð raunin. Á 67 mín gerðum við 3 skiptinguna og útaf kom Aníta (var tæp á hnénu) en inná kom Þorgerður. Því að eftir margar tilraunir við að skora þá fengum við hornspyrnu á 87 mín og eftir mikin klafs ínn í teignum þá setti Hafdís hann í netið á 88 mín. Það var miðja tekinn og ekki vorum við hættar því við unnum boltan vel og hann barst fyrir tærnar (bókstaflega) á henni Kristínu á 89 mín, sem setti hann með tánni í netið og innsiglaði sigur okkar á spræku HK/Víkingsstelpum.

Þennan sigur no. 1, 2 og 3 skóp liðsheildin, ein fyrir allar og allar fyrir eina. Ása stóð sig mjög vel í markinu, varði 2-3 skot mjög vel en fékk á sig óverjandi skot sem að hún náði ekki í. Magga Pála kom mjög sterk út í hægri bakvarðarstöðunni og loksins gat ég notað hana þar. Með betra þoli þá eigum við eftir að sjá hana skjótast upp kanntin og koma tuðruni fyrir markið. Magga M byrjaði í miðverðinum og stóð hún sig vel þar þrátt fyrir að vilja ekki spila þá stöðu en það er einn maður sem ræður hvar hver spilar og hann er ég. Magga fór svo á miðjuna og stóð sig líka vel þar og það var gaman að sjá að hún var að reyna að skjóta og er ég mjög ánægður með það því að þegar að hún mundar vinstri fótinn þá myndi ég færa mig en viti menn hún Magga endaði sem center og stóð sig líka vel þar en fékk oft ekki nægilegan stuðning þar. Bára tel ég vera fjölhæfan leikmann og miðvarðarstaðan mjög góður kostur fyrir hana, stóð sig mjög vel. Nokkrar útsölur en ekkert alvarlegt he he he. Aníta er leikmaður sem leysir þau verkefni sem að fyrir hana eru sett og þarna spilaði hún vinstri bak og stóð hún sig vel en mætti vera ákveðnari í návígi en það kemur. Hlíf leggur sig mjög vel fram fyrir liðið en við eigum eftir að sjá hana örrugari þegar að fram líða stundir, stóð sig vel bæði sem center og miðjuni. Bentína er góður leikmaður sem er yfirveguð í sínum aðgerðum og dreifir boltanum vel innan liðsins en sem fyrirliði vill ég heyra meira í henni, stóð sig mjög vel. Hafdís hún er ódrepandi er alltaf á milljón, hættir aldrei og ég er feginn að hafa hana í okkar liði en ekki í liði andstæðinga. Fín yfirferð, mikil barrátta og gefst aldrei upp, stóð sig mjög vel. Rakel hefur risið sem leikmaður og á bara eftir að rísa, hún hefur hraða, tækni en lítið sjálfstraust og þegar að það kemur þá bakverðir passið ykkur, stóð sig vel. Bergdís mjög góður leikmaður, hefur hraðan , tæknina, áræðnina en vantar líka sjálfstraust en stóð sig vel í dag. Thelma Björk stóð sig mjög vel í þær 45 mín sem að hún var inná og skoraði glæsilegt mark og gafst aldrei upp þrátt fyrir að hafa spilað heilan leik í gær með 3.fl.kv og á bara eftir að verða betri. Svo kom inná Guðlaug og stóð hún sig vel inná miðjunni og barðist eins og ljón þrátt fyrir að hafa spilað heilan leik í gær eins og Thelma. Katrín kom líka inná var svakalega stressuð en koma sér inní leikinn og setti hann glæsilega á 89 mín, stóð sig vel. Þorgerður kom í vinstri bakvarðarstöðuna og var líka stressuð en stóð sig vel.

Ég get ekki sagt annað en til hamingju með þetta stelpur og vona ég að við getum byggt á þessu í næsta leik sem er á fimmtudaginn við KR. En ekki gleyma okkur því að á fimmtudaginn er nýr leikur og þar eru 2 lið sem þrá jafnmikið að vinna leikinn og gera allt til þess að sigurinn sé réttu megin. Þarna sjáið þið hvað þið getið gert sem lið, þið getið verið stoltar af ykkur.

Verð í bandi með morgundaginn.


Með kveðju Teddi þjálfari sem er að farast úr stolti

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?