<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, júní 30, 2006

Frí í dag og á morgun en æfing á ......... 

Jæja stelpur

Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur undanfarið, margir leikir á fáum dögum. Vegna veikinda leikmanna ætla ég að gefa frí í dag og á morgun og leyfa ykkur að sjá undanúrslitaleikina á HM. Einnig er þetta ein mesta ferðahelgi sumarsins og ef að þið eruð að fara eitthvað farið þá varlega. En það verður æfing á sunnudaginn á sparkvellinum í Grafarvogi.

En ég hvet ykkur til að fara út að skokka og taka styrktaræfingar.

Dagskrá:

Föstudagurinn 30.júní, FRÍ

Laugardagurinn 1.júlí, FRÍ

Sunnudagurinn 2.júlí, sparkvöllurinn Grafarvogi
kl 19:00


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, júní 26, 2006

Æfing í kvöld og leikur á morgun...... 

Það er æfing í kvöld á sparkvellinum í Grafarvogi kl 21:30 og ég krefst þess að það mæti allar á þessa æfingu..........:-)

Það er leikur á morgun við GRV í Grindavík kl 20:00. Við förum með rútu frá Valsheimilinu kl 17:30, þannig að það er mæting kl 17:15. Eftir leikinn ætlum við að fá okkur að borða í Grindavík þannig að komið með penning með ykkur til þess.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, júní 22, 2006

Mikið búið að bíða eftir þessu...... 

Jæja stelpur

Ég skulda ykkur víst umsögn um 2 leiki þ.e.a.s. við Þór/KA sem fór fram 15.júní á Akureyri og leikinn við Breiðablik sem fór fram 19.júní í Kópavogi.

Þór/KA
Liðskipan: Ása (gk), Lovísa, Anna Sóley, Bára, Aníta, Hlíf, Magga (capt), Begga Gná, Lilja, Rakel og Thelma. Varamenn Ingó (gk), Guðlaug og Begga B.

Við byrjuðum leikinn mjög vel þá og hefðum getað komist strax í 2-0 á fyrstu 10-15 mín, en allt kom fyrir ekki. Svo á 16 mín gerðist það að Ása fékk rautt spjald vegna brotts á sóknarmanni Þórs/KA. Þá þurftum við þá að gera skiptingu og tókum við Anítu útaf fyrir Ingó og Lilja datt niður í vinstri bakvörð. Svo bráðlega eftir brottreksturinn þá kom skot á markið sem Ingó hélt ekki og endaði knötturinn í markinu. Fram að hálfleik var mikið jafnræði með liðinum og staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Þór/KA.

Við förum inn á völlinn í seinnihálfleik staðráðnar í því að jafna leikinn og þar var á ferð Rakel sem var farinn að spila sem framherji með Thelmu Ýr. Þarna var Guðlaug kominn inn á fyrir Beggu Gná sem var frekar róleg að þessu sinni. Svo þegar að 15 mín voru eftir kom Begga B inná fyrir Rakel og ætluðum við að spila til sigurs. Á 86 mín kom bolti á vörnina sem að vörnin náði ekki að hreinsa í burtu og þar fyrir aftan var sóknarmaður Þór/KA sem að setti hann í netið.

Þannig endaði leikurinn 2-1 fyrir Þór/KA en þrátt fyrir að vera 1 færri í ca. 80 mín þá vorum við ekki síðri aðilinn í leiknum, langt í frá. Flottur leikur hjá ykkur stelpur og munið að við vinnum sem lið og töpum sem lið. Það var dálítið um það að miðjumenn væru að hlaupa út úr stöðunum sínum og skildu eftir svæði fyrir aftan sig en við vinnum í því. Það voru

Breiðablik
Liðsskipan: Ingó (gk), Lovísa, Anna María, Bára, Aníta, Magga Pála, Hafdís, Magga (capt), Hlíf, Thelma Björg og Thelma Ýr. Varamenn, Rakel, Lára, Kristrún og María Rós.

Þetta var hörkuleikur og byrjuðum við hann mjög ákveðið og sýndum stelpunum í Breiðablik að við ætluðum að vinna þennan leik. Þannig var fyrrihálfleikurinn bæði liðin börðust og fengu bæði lið færri til þess að skora en allt kom fyrir ekki.

Það sama var um seinnihálfleik mikill barrátta og hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir. Þó fengu breiðabliksstelpur fleiri færri til að skora en Ingó og vörnin sá algeralega við þeim. Á 50 mín skiptum við Kristrúnu inná fyrir Anítu og kom hún í vinstri bakvörðinn. Blikarnir sóttu í sig veðrið og voru að fá þó nokkur færi en Ingó var mætt á svæðið og lokaði markinu. Á 60 mín skiptum við Möggu Pálu útaf og inná kom María Rós sem fór í miðvörðinn með Önnu Maríu þá færðum við Báru fram á miðjuna og kom nokkur hætta við markið þeirra eftir það. á 70 mín kom svo að því að Thelma fékk góðan bolta upp vinstri kanntinn og lét sig vaða inn í vítateig og setti boltan með hægri í fjærhornið, þvílíkt mark. 0-1 staðan fyrir okkur og kom þetta Breiðablik algeralega í opna skjöldu en svo stuttu seinna meiddist Anna María og þurfti hún að yfirgefa völlinn og kom þá Lára inná í miðvörðinn. Við mættum þó nokkri pressu frá Blikunum eftir markið sem að við gerðum og vörðumst við vel og það sem slapp í gegn tók Ingó örruglega. Á 77 mín fengum við horn og eftir klafs í teignum þá skoraði Thelma Björg mikilvægt mark og staðan orðin 0-2. Þannig endaði leikurinn og mikilvægur sigur fyrir okkur uppá framhaldið.

Ég var mjög gaman að sjá hvað leikmenn voru einbeitir í þessum leik og hvað leikmenn lögðu á sig inn á vellinum. Einnig voru stelpurnar í 3.fl.kv að standa sig mjög vel, flott hjá ykkur stelpur.

Næsti leikur hjá okkur í Íslandsmótinu er á móti GRV þriðjudaginn 27.júní kl 20:00.


Með kveðju Teddi

Comments:
einhver misskilningur þarna á ferð þar sem það er ómugulegt að Thelma Björk hafi skorað úr horni...Því við fengum engin horn í leiknum:)
 
Skrifa ummæli

föstudagur, júní 16, 2006

Upp með hausinn..... 

Jæja stelpur

Takk fyrir ferðina norður. Þetta var svakalegur leikur við góðar aðstæður en nú fer að vera stutt á milli leikja hjá okkur og við vitum hvað við þurfum að gera í næsta leik á móti Breiðablik á mánudaginn.


Dagskráinn:


Mánudagurinn 19.júní, Völlurinn við Fífuna leikur við Breiðablik
Mæting kl 19:00 og hefst leikurinn kl 20:00

Þriðjudagurinn 20.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 20:00-21:00 (skallatennis)

Miðvikudagurinn 21.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 19:15-20:15 (skallatennis)

Fimmtudagurinn 22.júní, Valbjarnavöllur
Landsbankadeild kvenna mfl. Valur - Keflavík kl 19:15

Föstudagurinn 23.júní, Ásvellir Bikarkeppni 2.fl. leikur við Hauka
Mæting kl 19:00 og hefst leikurinn kl 20:00

Laugardagurinn 24.júní, ?
kl ?, létt skokk og heitur pottur

Sunnudagurinn 25.júní, Túngubökkum
kl 12:00-13:30

Mánudagurinn 26.júní, Kaplakriki
Landsbankadeild kvenna mfl. FH - Valur kl 19:15

Þriðjudagurinn 27.júní, leikur við GRV í Grindavík
nánar síðar...........

Miðvikudagurinn 28.júní, ?
kl ?, létt skokk og heitur pottur

Fimmtudagurinn 29.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30

Föstudagurinn 30.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30


Áfram Valur


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, júní 14, 2006

Skoða skoða skoða..... 

Vegna ferðarinar á morgun............................


Fimmtudagurinn 15.júní, Hlíðarendi
Mæting kl 12:00 með nesti og nýja skó he he he
Brottför kl 12:30

Við munum stopa og fá okkur að borða á leiðinni norður, spila leikinn kl 20:00, síðan eftir leik fáum við okkur að borða og keyrum svo heim. Heimkoma ca. kl 03.00.

Við þurfum öll að koma með 4000.- þús kr og leggja út fyrir kostnaði en svo fáum við hann endurgreiddan frá Val. Kostnaðurinn er gönginn (x2), matur (x2), bensín og vonandi Brynjuís.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

Góð lesning......... 

Inngangur

Þessi grein er þýdd og er eftir , Rick Newkirk. Rick er yfirþjálfari St. Louis Comets AAU Girl's Basketball Club, kvennaliðs í körfubolta.

Andlegt viðhorf

Hvað gerir góðan leikmann stórkostlegan? Stærðin, styrkurinn, skottæknin, hraðinn eða snerpan? Ég trúi því að það sé viðhorf hans? Eiginleiki þeirra er að sætta sig við umhverfið og gera það sem þeim finnst skemmtilegt. Þeir sem eru vanir að tapa (losers) virðast aldrei skilja af hverju þeir töpuðu. Þeir skella skuldinni á dómarana, völlurinn lélegur eða íþróttahúsið lélegt, samherjarnir og fleiri utanaðkomandi ástæður. Þeir sem eru vanir að sigra (winners) spila hins vegar af sér öll vandamál. Einu sinni var spurt um hvað það væri sem skipti mestu máli í fótboltaleik? "Það er án efa 15 cm. svæðið á milli eyrna þinna". Sigurinn fellur þeim í skaut sem halda einbeitingu. Góðir leikmenn láta aldrei andstæðingana eða utanaðkomand áhrif stjórna leiknum. Þeir eru andlega sterkir og í góðu andlegu ástandi. Það er auðvelt að missa stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þeim meiri tíma sem þú eyðir í að spá í þá hluti sem gengu ekki upp, því fleiri hlutir hætta að ganga upp. Ég get ekki talið þau skipti sem ég hef séð leikmenn missa boltann og svo stjórn á skapi sínu vegna þess að andstæðingurinn uppnefndi mömmu hans. Ef andstæðingur getur haft slík áhrif á leikmann þá spyr ég, hvor vinnur leikinn? Strax og þú hefur misst stjórn á skapi þínu ertu búinn að missa stjórn á þínum leik og öllu er beint gegn þér, dómarinn dæmir á þig, þú skorar ekki úr dauðafærinu, þetta er eins og með borgararstríð, strax og það er búið þá verða þeir HISTORY ( gleymt og grafið).

Íþróttamannleg framkoma

Sýndu íþróttamannlega framkomu! Það er auðvelt að vera sigurvegari, en að bera höfuð hátt eftir erfitt tap setur þig í sérflokk. Góðir leikmenn taka aldrei tapi vel. Ef þú hefur lagt þig 110% fram en þú varst samt sigraður þá er enginn skömm fyrir því að hafa tapað. Sýndu þeim virðingu sem spiluðu betur þennan daginn. Lærðu af því og láttu það svo eiga sig. Virðingin sem þú öðlast frá andstæðingnum og áhorfendum er vel þess virði.

Líkamsástand

Vertu í formi! Hetja er ekkert hugrakkari en hinn venjulegi maður, en hetjan er hetja fimm mínútur lengur en hinn venjulegi. Eyddu eins miklum tíma í umhyggju um líkamann eins og þú eyðir í leikinn sjálfan. Borðaðu góðan mat, sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld, hlauptu þrisvar í viku, forðist áfengi, tóbaki og eiturlyf. Að æfa einn er ekki auðvelt, en eins og þjálfarinn Lombardi sagði, hreyfingarleysi gerir okkur að hugleysingja. Að tapa leik á síðasta stundarfjórðungnum vegna lélegs þols er ófyrirgefanlegt. Ef þú tapar leik gangtu þá úr skugga um að andstæðingurinn hafi leikið betur en þið, ekki aðeins sigrað á betra formi. Ekki búið fyrr en það er búið

Gefstu aldrei upp!

Sigurvegari gefst aldrei upp. " Sá sem sigrar hefur oft verið talinn búinn að vera, en þeir heyrðu einfaldlega ekki í dómaranum" (Jansen). Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Ekkert er ógerlegt ef þú trúir. Þú verður hissa á því hvað getur gerst ef þú gefst aldrei upp.

Skuldbinding og hörð vinna

Leggið mikla vinnu á ykkur og verið áköf. Láttu aldrei vanta baráttu og vilja. Það lið sem er harðfylgið kemur yfirleitt út sem sigurvegari. Sýnið eldmóð! Íþrótt eða eitthvað annað er ekki vinna, nema að þú viljir gera eitthvað annað. Skuldbindið ykkur til að skara fram úr, þú getur alltaf bætt við. Þegar stórafrek gærdagsins eru enn þá stór í dag, þá hefurðu ekki gert mikið í dag. Það er enginn skiptimaður til að fara á æfingu. Ekki telja dagana... láttu hvern dag telja. Eini maðurinn sem heldur þér á varamannabekknum og frá byrjunarliðinu......ert þú!

Samherjar

Góðir leikmenn gagnrýna sjálfa sig, ekki liðsfélagana. Allir hafa tækifæri á að bæta sig og ná framförum, alveg sama í hvaða flokki þeir eru og það að tala um einhvern sem er kominn styttra á veg í þjálfun á aldrei eftir að hjálpa þér að bæta leik þinn. Mundu, að það er enginn "ÉG" í liði. Fylgstu með því sem liðsfélagar þínir eru að gera og áhugamálum þeirra, það hjálpar til við að ná betri árangri. Það tekur 11 leikmenn (fótbolti) að vinna saman til þess að niðurstaðan verði árangursrík eða eiginlega 16 ef bekkurinn er talin með.

Leiðtogi

Vertu aldrei hræddur við að stjórna. Ef einhver liðsmaður á í erfiðleikum þá á að hvetja hann áfram og koma honum á rétta braut. Á æfingum skaltu mæta fyrstur á völlinn en vertu síðastur til að yfirgefa hann. Spjallaðu á vellinum, stjórnaðu umferðinni, láttu vita ef einhver er í góðu færi eða þegar vörnin hefur opnast upp á gátt. Það sem þú sérð kannski skýrt í dag á annar erfitt með að sjá. Þú getur aldrei gengið að mótherja sem vísum, berðu virðingu fyrir hverjum og einum andstæðingi sem þú mætir og getu hans. Vertu leikmaður sem segir ég "get", fremur en leikmaður sem segir ég"get ekki". Ekkert stórafrek hefur verið gert án eldmóðs. Vertu fullkominn leikmaður!

Umhugsunarefni í lokin

Vertu harður! En taktu þig ekki of alvarlega þannig að þú gleymir að lykta af rósunum. Njóttu leiksins, mörg dæmi eru notuð í kennslustundum um lífið og tilveruna af íþróttafólki sem hefur gaman af og lært mikið af því að hlaupa á trégólfinu. Mundu, við getum ekki alltaf stjórnað því sem gerist fyrir utan íþróttirnar en við getum stjórnað því sem gerist þar fyrir innan. Vertu andlega sterkur, láttu aldrei hluti sem gerast inn á vellinum verða valdur af brotthvarfi þína af vellinum. Einbeyttu þér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum. Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín. Meistarar eru búnir til, þeir eru ekki fæddir meistarar. Eiginleikar geta komið þér á toppinn en það þarf karakter til að halda þér þar.

Comments: Skrifa ummæli

Loksins, loksins, loksins...... 

Jæja stelpur

Við höfum byrjað Íslandsmótið mjög vel, betur en margur þorði að vona. Ef þið hugsið aðeins til baka þá höfum við verið að standa okkur mjög vel 3. sætið í Íslandsmótinu innanhús og 3. sætið á markatölu í Reykjavíkurmótinu. Við höfum bara tapað 2 leikjum á þeim mótum sem að við höfum tekið þátt í. Ég hef trú á okkur en við getum þetta ekki nema að allir standi saman sem eitt, einn fyrir alla og allir fyrir einn.

Það er sagt að erfiðleikar séu séu prófraun á fólk og erum við búnar að ganga í gegnum erfiðleika sem eru ekki ennþá yfirstaðnir þó síður sé. En það sem að brýtur okkur ekki niður styrkir okkur bara og við erum orðnar nokkuð sterkar. En fallið er hátt og ekki megum við ofmetnast né vanmeta andstæðinga okkar því að allir vilja vinna okkur.


Dagskrá:

Miðvikudagurinn 14.júní, Tungubökkum
kl 19:00-20:30

Fimmtudagurinn 15.júní, Hlíðarendi
Mæting kl 12:00 með nesti og nýja skó he he he
Brottför kl 12:30
Við munum stopa og fá okkur að borða á leiðinni norður, spila leikinn kl 20:00, síðan eftir leik fáum við okkur að borða og keyrum svo heim. Heimkoma ca. kl 03.00.

Við þurfum öll að koma með 4000.- þús kr og leggja út fyrir kostnaði en svo fáum við hann endurgreiddan frá Val. Kostnaðurinn er gönginn (x2), matur (x2), bensín og vonandi Brynjuís.

Föstudagurinn 16.júní, ?
kl ?
Létt skokk og svo heitur pottur (saman)

Laugardagurinn 17.júní, FRÍ FRÍ FRÍ hæ hó jibbíjei

Sunnudaginn 18.júní, Túngubökkum
kl 12:00-13:30

Mánudagurinn 19.júní, leikur við Breiðablik
nánar síðar......

Þriðjudagurinn 20.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 20:00-21:30 (skallatennis)

Miðvikudagurinn 21.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 19:00-20:00 (skallatennis)



Fimmtudagurinn 22.júní, Valbjarnavöllur
Landsbankadeild kvenna mfl. Valur - Keflavík kl 19:15

Föstudagurinn 23.júní, Hlíðarendi
kl 17:30-19:00 m/mfl.kv

Sunnudagurinn 25.júní, Túngubökkum
kl 12:00-13:30

Mánudagurinn 26.júní, Kaplakriki
Landsbankadeild kvenna mfl. FH - Valur kl 19:15

Þriðjudagurinn 27.júní, leikur við GRV í Grindavík
nánar síðar...........


Miðvikudagurinn 28.júní, ?
kl ?
Létt skokk og heitur pottur (saman)

Fimmtudagurinn 29.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30

Föstudagurinn 30.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30

Áfram Valur


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, júní 12, 2006

Nú fer að koma mjög þétt dagskrá..... 

Jæja stelpur

Það er verið að vinna í mánaðarplani hjá okkur og verður það sennilega komið á morgun. En þangað til verður þetta að duga.


Dagskrá:

Mánudagurinn 12.júní, Hlíðarendi
kl 19:30-21:00

Þriðjudagurinn 13.júní, FRÍ FRÍ FRÍ

Miðvikudagurinn 14.júní, æfing
kl ?, nánar siðar

Fimmtudaginn 15.júní, Halló Akureyri
Við leggjum af stað ca. kl 12:00, nánar síðar


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, júní 07, 2006

Æfing í kvöld og leikur á morgun.... 

Jæja stelpur

Það er æfing í kvöld og svo að sjálfsögðu er leikur á morgun við Stjörnuna í Garðabæ.

Dagskrá:

Miðvikudagurinn 7.júní, Hlíðarendi
kl 21:00- ?, (innanhús)

Fimmtudagurinn 8.júní, Hofsstaðavöllur
mæting kl 18:30, leikurinn byrjar kl 20:00

Föstudagurinn 9.júní, Hlíðarendi
kl 17:00, létt skokk (endurgjöf)
þær sem komast ekki eiga að fara út að skokka í svona ca. 30 mín, taka 20 armbeygjur, 40 maga og 20 bak.

Laugardagurinn 10.júní, KR-völlur
Landsbankadeild kvenna KR-Valur kl 16:00


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

þriðjudagur, júní 06, 2006

Frí Frí Frí Frí í dag... 

Jæja stelpur


Það er enginn æfing í dag en það verður æfing á morgun, nánar síðar.....


Vill minna ykkur á leikinn á fimmtudaginn á móti Stjörnunni....



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, júní 04, 2006

Mánudagur 

Skallatennis, skallatennis og skallatennis. Inn í litla salnum á Hliðarenda á morgun annan í hvítasunnu.

Látið vita hvort að það sé betra að fara í skallatennis kl 12:00 eða 16:00,skrifa í neðra Comments.......


Kveðja Teddi "skallatennismeistari"

Comments:
Great site lots of usefull infomation here.
»
 
Skrifa ummæli

föstudagur, júní 02, 2006

Jæja stelpur

Við spiluðum við KR í gær eins og þið sjálfsagt vitið. Þetta var flottur leikur hjá ykkur, lentum 0-2 undir en héldum áfram og misstum aldrei trúna að við gætum unnið þær. Enda varð sú raunin því að leikurinn endaði 5-2 okkur í vil. Til hamingju með þetta stelpur.

Það er sagt að erfiðleikar séu séu prófraun á fólk og erum við búnar að ganga í gegnum erfiðleika sem eru ekki ennþá yfirstaðnir meiri segja. En það sem að brýtur okkur ekki niður styrkir okkur bara og við erum orðnar nokkuð sterkar. En fallið er hátt og ekki megum við ofmetnast né vanmeta andstæðinga okkar því að allir vilja vinna okkur.

Mér finnst dálítið skrýtið að heyra í leikmönnum eftir svona leik eins og í gær að þeir hafi staðið sig illa. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum í hópíþrótt og í gær vann betra liðið klárlega. Allar erum við partur af liði og í liðinu í gær stóðu sig allir vel. En málið er að við getum allar gert betur, það er alveg rétt en í hópíþrótt sækjum við stuðning til næsta manns og þess vegna þurfa allir að gefa af sér hvort það sé inná vellinum eða fyrir utan. Ef að leikmanni finnst hún hafa staðið sig illa þá er bara gott að spyrja þá leikmenn sem að maður er að spila með því að oft segi ég við ykkur að þið hafið staðið ykkur vel og þá fæ ég svar frá ykkur "Nei, ég var ömurleg". En það er skrýtið að við skulum vera búnar að vinna báða leikina á Íslandsmótinu með ömurlega leikmenn innanborðs, hmn kannski eitthvað sem að við ættum að hugsa um.


Dagskrá vikunar:

Föstudagurinn 2.júní, Valbjarnavöllur
kl 17:30-18:30, endurgjöf (létt skokk)

Laugardagurinn 3.júní, Hlíðarendi
kl 10:00-11:30, skallatennis (inni)

Landsbankadeild kvenna Valur - Breiðablik kl 16:00 á Valbjarnavelli

Mættum öll að styðja stelpurnar okkar, áfram Valur

Sunnudagurinn 3.júní, FRÍ FRÍ


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?