föstudagur, júní 02, 2006
Jæja stelpur
Við spiluðum við KR í gær eins og þið sjálfsagt vitið. Þetta var flottur leikur hjá ykkur, lentum 0-2 undir en héldum áfram og misstum aldrei trúna að við gætum unnið þær. Enda varð sú raunin því að leikurinn endaði 5-2 okkur í vil. Til hamingju með þetta stelpur.
Það er sagt að erfiðleikar séu séu prófraun á fólk og erum við búnar að ganga í gegnum erfiðleika sem eru ekki ennþá yfirstaðnir meiri segja. En það sem að brýtur okkur ekki niður styrkir okkur bara og við erum orðnar nokkuð sterkar. En fallið er hátt og ekki megum við ofmetnast né vanmeta andstæðinga okkar því að allir vilja vinna okkur.
Mér finnst dálítið skrýtið að heyra í leikmönnum eftir svona leik eins og í gær að þeir hafi staðið sig illa. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum í hópíþrótt og í gær vann betra liðið klárlega. Allar erum við partur af liði og í liðinu í gær stóðu sig allir vel. En málið er að við getum allar gert betur, það er alveg rétt en í hópíþrótt sækjum við stuðning til næsta manns og þess vegna þurfa allir að gefa af sér hvort það sé inná vellinum eða fyrir utan. Ef að leikmanni finnst hún hafa staðið sig illa þá er bara gott að spyrja þá leikmenn sem að maður er að spila með því að oft segi ég við ykkur að þið hafið staðið ykkur vel og þá fæ ég svar frá ykkur "Nei, ég var ömurleg". En það er skrýtið að við skulum vera búnar að vinna báða leikina á Íslandsmótinu með ömurlega leikmenn innanborðs, hmn kannski eitthvað sem að við ættum að hugsa um.
Dagskrá vikunar:
Föstudagurinn 2.júní, Valbjarnavöllur
kl 17:30-18:30, endurgjöf (létt skokk)
Laugardagurinn 3.júní, Hlíðarendi
kl 10:00-11:30, skallatennis (inni)
Landsbankadeild kvenna Valur - Breiðablik kl 16:00 á Valbjarnavelli
Mættum öll að styðja stelpurnar okkar, áfram Valur
Sunnudagurinn 3.júní, FRÍ FRÍ
Með kveðju Teddi S

Comments:
Skrifa ummæli