<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júní 14, 2006

Loksins, loksins, loksins...... 

Jæja stelpur

Við höfum byrjað Íslandsmótið mjög vel, betur en margur þorði að vona. Ef þið hugsið aðeins til baka þá höfum við verið að standa okkur mjög vel 3. sætið í Íslandsmótinu innanhús og 3. sætið á markatölu í Reykjavíkurmótinu. Við höfum bara tapað 2 leikjum á þeim mótum sem að við höfum tekið þátt í. Ég hef trú á okkur en við getum þetta ekki nema að allir standi saman sem eitt, einn fyrir alla og allir fyrir einn.

Það er sagt að erfiðleikar séu séu prófraun á fólk og erum við búnar að ganga í gegnum erfiðleika sem eru ekki ennþá yfirstaðnir þó síður sé. En það sem að brýtur okkur ekki niður styrkir okkur bara og við erum orðnar nokkuð sterkar. En fallið er hátt og ekki megum við ofmetnast né vanmeta andstæðinga okkar því að allir vilja vinna okkur.


Dagskrá:

Miðvikudagurinn 14.júní, Tungubökkum
kl 19:00-20:30

Fimmtudagurinn 15.júní, Hlíðarendi
Mæting kl 12:00 með nesti og nýja skó he he he
Brottför kl 12:30
Við munum stopa og fá okkur að borða á leiðinni norður, spila leikinn kl 20:00, síðan eftir leik fáum við okkur að borða og keyrum svo heim. Heimkoma ca. kl 03.00.

Við þurfum öll að koma með 4000.- þús kr og leggja út fyrir kostnaði en svo fáum við hann endurgreiddan frá Val. Kostnaðurinn er gönginn (x2), matur (x2), bensín og vonandi Brynjuís.

Föstudagurinn 16.júní, ?
kl ?
Létt skokk og svo heitur pottur (saman)

Laugardagurinn 17.júní, FRÍ FRÍ FRÍ hæ hó jibbíjei

Sunnudaginn 18.júní, Túngubökkum
kl 12:00-13:30

Mánudagurinn 19.júní, leikur við Breiðablik
nánar síðar......

Þriðjudagurinn 20.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 20:00-21:30 (skallatennis)

Miðvikudagurinn 21.júní, Hlíðarendi (inni)
kl 19:00-20:00 (skallatennis)



Fimmtudagurinn 22.júní, Valbjarnavöllur
Landsbankadeild kvenna mfl. Valur - Keflavík kl 19:15

Föstudagurinn 23.júní, Hlíðarendi
kl 17:30-19:00 m/mfl.kv

Sunnudagurinn 25.júní, Túngubökkum
kl 12:00-13:30

Mánudagurinn 26.júní, Kaplakriki
Landsbankadeild kvenna mfl. FH - Valur kl 19:15

Þriðjudagurinn 27.júní, leikur við GRV í Grindavík
nánar síðar...........


Miðvikudagurinn 28.júní, ?
kl ?
Létt skokk og heitur pottur (saman)

Fimmtudagurinn 29.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30

Föstudagurinn 30.júní, Túngubökkum
kl 19:15-20:30

Áfram Valur


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?