<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, júní 22, 2006

Mikið búið að bíða eftir þessu...... 

Jæja stelpur

Ég skulda ykkur víst umsögn um 2 leiki þ.e.a.s. við Þór/KA sem fór fram 15.júní á Akureyri og leikinn við Breiðablik sem fór fram 19.júní í Kópavogi.

Þór/KA
Liðskipan: Ása (gk), Lovísa, Anna Sóley, Bára, Aníta, Hlíf, Magga (capt), Begga Gná, Lilja, Rakel og Thelma. Varamenn Ingó (gk), Guðlaug og Begga B.

Við byrjuðum leikinn mjög vel þá og hefðum getað komist strax í 2-0 á fyrstu 10-15 mín, en allt kom fyrir ekki. Svo á 16 mín gerðist það að Ása fékk rautt spjald vegna brotts á sóknarmanni Þórs/KA. Þá þurftum við þá að gera skiptingu og tókum við Anítu útaf fyrir Ingó og Lilja datt niður í vinstri bakvörð. Svo bráðlega eftir brottreksturinn þá kom skot á markið sem Ingó hélt ekki og endaði knötturinn í markinu. Fram að hálfleik var mikið jafnræði með liðinum og staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Þór/KA.

Við förum inn á völlinn í seinnihálfleik staðráðnar í því að jafna leikinn og þar var á ferð Rakel sem var farinn að spila sem framherji með Thelmu Ýr. Þarna var Guðlaug kominn inn á fyrir Beggu Gná sem var frekar róleg að þessu sinni. Svo þegar að 15 mín voru eftir kom Begga B inná fyrir Rakel og ætluðum við að spila til sigurs. Á 86 mín kom bolti á vörnina sem að vörnin náði ekki að hreinsa í burtu og þar fyrir aftan var sóknarmaður Þór/KA sem að setti hann í netið.

Þannig endaði leikurinn 2-1 fyrir Þór/KA en þrátt fyrir að vera 1 færri í ca. 80 mín þá vorum við ekki síðri aðilinn í leiknum, langt í frá. Flottur leikur hjá ykkur stelpur og munið að við vinnum sem lið og töpum sem lið. Það var dálítið um það að miðjumenn væru að hlaupa út úr stöðunum sínum og skildu eftir svæði fyrir aftan sig en við vinnum í því. Það voru

Breiðablik
Liðsskipan: Ingó (gk), Lovísa, Anna María, Bára, Aníta, Magga Pála, Hafdís, Magga (capt), Hlíf, Thelma Björg og Thelma Ýr. Varamenn, Rakel, Lára, Kristrún og María Rós.

Þetta var hörkuleikur og byrjuðum við hann mjög ákveðið og sýndum stelpunum í Breiðablik að við ætluðum að vinna þennan leik. Þannig var fyrrihálfleikurinn bæði liðin börðust og fengu bæði lið færri til þess að skora en allt kom fyrir ekki.

Það sama var um seinnihálfleik mikill barrátta og hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir. Þó fengu breiðabliksstelpur fleiri færri til að skora en Ingó og vörnin sá algeralega við þeim. Á 50 mín skiptum við Kristrúnu inná fyrir Anítu og kom hún í vinstri bakvörðinn. Blikarnir sóttu í sig veðrið og voru að fá þó nokkur færi en Ingó var mætt á svæðið og lokaði markinu. Á 60 mín skiptum við Möggu Pálu útaf og inná kom María Rós sem fór í miðvörðinn með Önnu Maríu þá færðum við Báru fram á miðjuna og kom nokkur hætta við markið þeirra eftir það. á 70 mín kom svo að því að Thelma fékk góðan bolta upp vinstri kanntinn og lét sig vaða inn í vítateig og setti boltan með hægri í fjærhornið, þvílíkt mark. 0-1 staðan fyrir okkur og kom þetta Breiðablik algeralega í opna skjöldu en svo stuttu seinna meiddist Anna María og þurfti hún að yfirgefa völlinn og kom þá Lára inná í miðvörðinn. Við mættum þó nokkri pressu frá Blikunum eftir markið sem að við gerðum og vörðumst við vel og það sem slapp í gegn tók Ingó örruglega. Á 77 mín fengum við horn og eftir klafs í teignum þá skoraði Thelma Björg mikilvægt mark og staðan orðin 0-2. Þannig endaði leikurinn og mikilvægur sigur fyrir okkur uppá framhaldið.

Ég var mjög gaman að sjá hvað leikmenn voru einbeitir í þessum leik og hvað leikmenn lögðu á sig inn á vellinum. Einnig voru stelpurnar í 3.fl.kv að standa sig mjög vel, flott hjá ykkur stelpur.

Næsti leikur hjá okkur í Íslandsmótinu er á móti GRV þriðjudaginn 27.júní kl 20:00.


Með kveðju Teddi

Comments:
einhver misskilningur þarna á ferð þar sem það er ómugulegt að Thelma Björk hafi skorað úr horni...Því við fengum engin horn í leiknum:)
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?