<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, september 20, 2006

Ferðin 6.- 8. október 

Jæja stelpur

Nú er komið að ferðinni sem að ég hef verið að nefna við ykkur oft og títt. En ferðinni er heitið í Bítlabæinn Keflavík, en þar fer ágætur kafli fram úr bókinni Mýrin en einhverjir eru víst að þreyta próf úr þeirri ágætu bók.

En hér koma nokkrar staðreyndir um ferðina okkar:

Við munum leigja einn 14 manna bíl sem að ég keyri (er með próf, held ég).
Við munum gista á 2 hæðinni í Reykjaneshöllinni.
Við munum taka 3 æfingar í Reykjaneshöllinni og 1 æfingu innanhús í íþróttasal Akademíunar.
Við munum fara út að borða föstudagskvöld, laugardagshádegi, við fáum sendan mat til okkar laugardagskvöldið og förum svo út að borða á sunnudaginn (allt matur sem að þið getið borðað).
Við munum fara í sund (1-2 sinnum)
Við munum halda 2-3 fundi um eftirfarandi efni taktík, matarræði og SÁLFRÆÐI.
Við verðum með risastórt sjónvarp til þess að nota í til dæmis Sing Star keppni, horfa á ræmu eða kannski kíkja á boltann.
Á sunnudeginn endum við á heitum stað, mmm góð lykt.

Í þessari ferð munið þið gráta, hlæja, fara í fýlu og verða vandræðilegar (you can take that to the bank).

Allt þetta er innifalið í verðinu og verður það á bilinu 10-11.500 þús.

Ég legg mikla áherslu á að allir fari með því að þarna leggjum við línurnar fyrir tímabilið OKKAR og við ætlum að tengjast tryggðarböndum við hvor aðra, því að munið við erum bara eins sterkar og veikasti hlekkurinn okkar. Þess vegna er samstaða og liðsheild mikilvægur hlekkur til þess að ná árangri sem og GÆS GÆS GÆS (Geta Ætla Skal), leggið þetta á minnið strax annað er ekki í boði. Hlutir eins og "ég get ekki" eru ekki til í orðabókinni minni og við þurkum það út úr ykkar bók líka í Keflavík. Traust leikmanns og þjálfara þarf að vera gríðalega gott, ég hef trú á ykkur og þið verðið að hafa trú á því sem að ég bið ykkur um að gera, OK ?

Við munum biðja einhverjar að fara á bíl (sem geta) ca. 2-3 fer eftir þáttöku en við munum að sjálfsögðu borga Bensín á bílanna.

Nú þarf að fara fram skráning í þessa ferð til þess að það sé hægt að gera almennilega kostnaðaráætlun og til að klára skipulagninguna.

Því bið ég ykkur stelpur um að skrá ykkur hér á síðunni með því að skrá í "COMMENT" staðfestingu á að þið ætlið að koma með og einnig þær sem að geta farið á bíl láti vita af því.


Með kveðju Teddi og Búbbarnir

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?