<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, október 29, 2006

3 leikir búnir, 2 sigrar og 1 tap...... 

Jæja stelpur

Þá er leikur 3 búinn og var hann á móti barráttuglöðu HK/Víkingsliði. En hann endaði 4-1 fyrir okkur þrátt fyrir að hafa lent 0-1 undir en við sæyndum góðan karakter og heldum áfram að spila okkar leik og þess vegna endaði hann með okkar sigri.

Markvörðurinn var mjög öruggur í sínum aðgerðum, fékk á sig eitt mark eftir gott skot frá Kareni framherja þeirra HK/Víkingsmanna sem var algerlega óverjandi fyrir hana Ásu okkar .

Vörnin er ennþá að stilla saman strengina sína og höldum við áfram að vinna í skipulagningu á henni. En það er nokkuð ljóst að við höfum marga kosti í stöðunni, sérstaklega hvernig við stillum henni upp, sem er jákvætt.

Miðjan vann mikið og var frekar þétt hjá okkur sem er gott mál.

Vængmenn okkar unnu mjög vel og munum við halda áfram að þróa leik þeirra.

Framherjinn okkar vann vel og setti 2 góð mörk og var mjög ógnandi.


En það eru samt hlutir sem að við sem lið eigum eftir að bæta okkur í, eins og til dæmis að nota breiddina meira, skipta betur á milli kantanna og fleira. En það verður gaman að skoða upptökuna af leiknum.


Dagskrá vikunar kemur inn á morgun mánudag......


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?