laugardagur, október 14, 2006
Leikur 1 búinn og stutt í næsta....
Jæja stelpur
Við spiluðum leik við KR i gær og töpuðum honum 4-3 á KR-vellinum við góðar aðstæður. En stelpur eins og ég sagði við ykkur þá voru margir fínir hlutir í gangi hjá okkur. Svo er það eitt, til þess að geta verið sigurvegari þarf maður að kunna að tapa. Munið að við vinnum sem lið og töpum sem lið.
Nokkrir punktar frá mér:
Varnarlega vantaði dálítið upp á skipulagið hjá okkur og að vörninni yrði stjórnað og að leikmenn tækju ábyrgð á hlutunum. Vorum ekki nægilega þéttar til baka, fórum dálítið útúr stöðunum okkar og bökuðum ekki næsta leikmann upp. Varnarmenn fengu of oft sóknarmenn á sig 1 á 1 með enga völdun bakvið sig. Varnarmenn seldu sig líka dálítið í staðin fyrir að halda og bíða eftir aðstoð.
Miðjan var ekki nægilega skipulögð. Of margir miðjumenn komnir of langt frá stöðunni sinni.
Sóknarlega skoruðum við 3 mjög góð mörk sem að kom eftir gott samspil hjá liðinu. En það örlaði dálítið á því að við vorum ekki með á hreinu hvert við áttum að senda boltan inn fyrir vörnina eða að við vorum ekki með hlaupin hjá framherjunum á hreinu. Þannig að við vorum að hlaupa dálítið vitlaust eða taka dálítið rangar ákvarðanir. Í staðinn fyrir að skjóta þegar að boltinn kom til okkar fyrir utan þá vildum við taka stundu of margar snertingar á boltan áður en að við skutum og þar af leiðandi náðum við ekki skotinu og misstum boltan á vondu svæði.
Get sagt ykkur það strax að það verða einhverjar breytingar liðinu fyrir leikinn á föstudaginn.
Munið verkefnin ykkar að skoða leikinn Breiðablik - Arsenal á netinu. Skoðið hlaupin og staðsetningar á leikmönnum Arsenal. Sjáið hvenær til dæmis bakverðirnir taka hlaupin.
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?date-from=2006-10-12
Dagskrá:
Mánudagurinn 15.október, Koparfrændi
mæting kl 18:50 á Kópavogsvöll og þetta verður búið kl 19:30, mikilvægt að vera í hlaupaskóm
Þriðjudagurinn 17.okt, Leiknisvöllurinn
kl 20:15-22:00, klæða sig vel
Miðvikudagurinn 18.okt, FRÍ FRÍ FRÍ
Fimmtudagurinn 19.okt, Framvöllurinn
kl 17:15-19:00, klæða sig vel
kl 20:00 sennilega foreldrafundur í Rimaskóla í Grafarvogi, nánar síðar...............
Föstudagurinn 20.okt, Þróttaravöllur
mæting kl 17:30, nánar síðar.......
Laugardagurinn 21.okt, Framvöllur
kl 14:30-16:00, klæða sig vel
Sunnudagurinn 22.okt, FRÍ FRÍ FRÍ
Hér er einn gullmoli:
"I have failed over and over and over again, that is why I succeed" M.Jordan.
Með kveðju Teddi

Comments:
Skrifa ummæli