<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, október 21, 2006

Leikurinn á föstudaginn 

jæja stelpur


Þá er leikur no 2 búinn og var hann á móti Þrótti R. Við spiluðum við fínar aðstæðar á Leiknisvellinum í Breiðholtinu, smá kalt en stilla. Leikurinn endaði 0-4 fyrir okkur og var margt jákvætt við okkar leik.

Punktar um leikinn:

Markmaðurinn var ekki á tánum í byrjun leiks en vann sig inn í leikinn og gerði vel. Talaði mikið við sína menn sem er mjög mikilvægt.

Varnarlega vorum við mjög agaðar, þá á ég ekki við að við höfum hrúað mörgum leikmönnum í vörnina og að leikmenn hafi ekki hlupið út úr stöðunum sínum þegar að þess þurfti. Heldur á ég við að leikmenn hafi skilað sýnu mjög vel og gerðu það sem að ég var að biðja þær um eins og að spila út úr vörninni undir smá pressu sem þær gerðu vel. Það sem að ég hefi viljað sjá er að vörnin hefði tekið meira þátt í sóknarleiknum en hún gerði, þá með upphlaupum en það kemur.

Miðjan spilaði mjög vel, vörnin græddi mikið á því að hafa Láru í þeirri stöðu sem að hún spilaði því að hún veiti þeim öryggi. Vegna þess að hún var alltaf til staðar þegar þær þurfti á henni að halda og hún var ekki að klappa boltanum of mikið og skilaði honum vel frá sér. Fremri miðjumenn vöru sífellt ógnandi þegar að við vorum með boltan og var góð vinnsla á þeim til baka líka. Þær voru duglegar að sækja á vörnina og að stinga sér í gegnum hana.

Kantmenn unnu fram og til baka og voru ákveðnar í sýnum verkefnum. Þær lokuðu þegar að þess þurfti og opnuðu líka mjög vel og spiluðu boltanum vel frá sér og studdu miðjuna mjög vel. Kantmenn þurfa að þorra að taka bakverðina á og það var gert í leiknum.

Frammi var stúlka ein sem að vissi lítið hvað hún átti að gera á móti þeim sterka varnarmanni sem að hengdi sig á hana. En þá þarf maður að vera sniðugur að draga viðkomandi út af sínu svæði og opna fyrir aðra og ef að ég man rétt þá skoruðum við einhver mörk sem komu beint upp miðjuna, er það ekki ? Þannig að hún hlýtur að hafa gert eitthvað rétt myndi ég halda. En það besta við hana var að hún gafst aldrei upp þrátt fyrir að vera vel dekkuð, heldur hélt áfram að reyna og það gera góðir leikmenn.

Ekki má gleyma fyrirliðanum sem sýndi hvað hún er mikið foringjaefni og hvernig hún leysti mál sem komu upp inn á vellinum var gaman að fylgjast með.

Leikurinn í heild sinni var miklu betri en á móti KR. Við spiluðum boltanum vel út úr vörninni, notuðum völlinn vel, spiluðum boltanum vel á milli okkar, vörðumst vel, sóttum mikið, vorum að spila einfaldan bolta og unnum sem lið. Til hamingju með leikinn stelpur.


En ekki halda að við getum ekki bætt okkur. Því að vera góður í fótbolta krefst mikillar vinnu og ef að maður gleymir sér og heldur að maður þurfi ekki að hafa fyrir hlutunum þá er fallið hátt. Ef að maður vill ná árangri þá verður maður að leggja mikið á sig og vera tilbúinn að læra af mistökum sínum.

En að velja í lið í 2.fl.kv verður alltaf erfiðara og erfiðara, sem er gott mál.

Sjáumst á eftir á Framvellinum þar sem að við eigum tíma :-), promise.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?