<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, október 09, 2006

Og allir komu til baka........eða hvað ? 

Jæja stelpur

Nú er sukkið búið og við þurfum að huga að þeim atriðum sem að vorum að fara yfir um helgina. Svefn/hvíld og matarræði eru hlutir sem að við þurfum að hugsa vel um ef að við viljum ná árangri. Einnig er mjög sniðugt ef að maður er að gefast upp að hugsa GÆS GÆS GÆS og er það skammstöfun fyrir GETA ÆTLA SKAL sem eru þau 3 orð sem við verðum ætíð að hafa hugföst, ef að við ætlum að ná árangri.

Málið er að hugurinn ber okkur hálfa leið og stundum getur hann flutt fjöll..........

Dagskrá:

Þriðjudagurinn 10.okt, Leiknisvöllur
kl 20:15-22:00, muna eftir hlaupaskóm og að klæða sig vel

Fimmtudagurinn 12.okt, Framvöllur
kl 17:15-19:00, muna eftir hlaupaskóm og að klæða sig vel

Föstudagurinn 13.okt, Egilshöll
mæting kl 17:30 hjá hópnum sem að verður valinn. Leikurinn byrjar kl 19:00 og er við KR.

Laugardagurinn 14.okt, Framvöllur
kl 14:30-16:00, klæða sig vel

Sunnudagurinn 15.okt, Egilshöll
kl 11:30-13:10, vera búnar að skoða blaðið með FIFA-æfingunum


Munið að láta vita ef að þið komist ekki og af hverju...........

Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?