<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Jújú... 

Jæja stelpur

Báðar æfingarnar um helgina voru mjög fínar enda ekkert rokk né rigning að gera okkur lífið létt. En munið eitt "það sem að þið gerið á æfingum, það gerið þið í leikjum" ekkert labb, takk fyrir.

En eins og þið vitið þá erum við að fara spila á móti feykisterki liði Fjölnis. Passið ykkur á því að vanmeta þkr ekki þó að þær hafi ekki halað inn mörgum stigum þá eru þær mjög góðar og koma til með að selja sig dýrt á móti okkur. Enda eru margir leikmenn með meistaraflokksreynslu, þannig mætum tilbúnar í leikinn.


Liðið verður þannig skipað.....

Náði ykkur núna he he he, en ég set ekki upp liði hérna það verður tilkynnt á morgun kl 19:32. En eftirfarandi hópur á að mæta með föt og munið að mótlæti styrkir mann ef að það er rétt tekið á því, en málið er að taka rétt á því. Þær sem að þarf að teypingu mætið tímanlega.

Ása (gk), Ingó (gk), Hlíf, Anna Sóley, Helena, Aníta, Rakel, Magga, Lilja, Begga B, Thelma Ýr, Thelma Björk, Anna G, Begga Gná, Lára, María Rós, Anna María, Kristrún, Lovísa og Guðný sem verður fyrirliði á morgun.

Sem sagt 20 leikmenn og allir þessir 20 leikmenn þurfa að mæta á svæðið með það hugarfar að vilja spila þennan leik og ætla að spila hann. Ef að þið eruð á bekknum þá sýnið þið mér það þegar að þið komið inná að þið áttuð að vera í liðinu og ekkert kjaftæði með það.

Þeir sem hvíla að þessu sinni eru:

Steinunn, Linda Rós, Elín, Bára, Bergdís og Mjöll.

Þó að þið eruð ekki í hóp að þessu sinni þá ætlast ég til að þið mætið því að þið eruð partur af liði og partur af hóp, áfram Valur.

Gullkorn dagsins eru:

Tindurinn er ekki bara einn. Tindarnir eru jafn margir og markmiðin. Þegar maður hefur komist á fyrsta tindinn hefst ferðin á þann næsta og svo koll af kolli. Lífið er fjallganga.


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?