fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Smá breyting í dag, lesið allt bloggið
Jæja stelpur
Guð minn eini, hvað það er kalt úti. Mér skilst að með vindkælingu sé um -20°C og það er bara erfitt að rökstyðja æfingar í slíkum kulda. Ég heyrði í öðrum þjálfurum í dag og þeir eru í svipuðum hugleiðingum, ætla að aflýsa æfingum.
Æfingu hjá 3.fl.kk í gær var hætt eftir 50 mín og þjálfarar þar ætla ekki að fara út á æfingu meðan kuldinn er svona mikill.
Ég heyrði af leikmanni í mfl. Þróttar sem var á æfingu í gær, kappklæddur eins og hann væri að fara upp á heiðar, en tognaði samt aftan í læri sem þýðir amk. 4 vikur frá æfingum.
Við verðum bara að bíta í það súra epli að sitja heima. Ég vona bara, að þið látið ykkur ekki verða kalt, séuð kappklæddar, með húfu og vettlinga og helst í tveimur buxum (snjóbuxum eða föðurlandinu!) ef þið farið eitthvað út. Þessi kuldi er alls ekkert grín og maður getur orðið virkilega lasinn af því að fara út of illa klædd.
Þannig að í staðin fyrir æfingu í kvöld höldum við töflufund í Rimaskóla kl 17:00-19:00. Gangið inn íþróttahúsmegin og farið upp stigann, sjáumst.......
Mikilvægt að mæta en látið vita ef að þið komist ekki !!!!!!
Með kveðju Teddi "snjókarl"

Comments:
Skrifa ummæli