<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, nóvember 06, 2006

Vikan hjá okkur.... 

Jæja stelpur

Nú er leikur no 4 búinn og hann endaði 0-1 okkur í hag á móti sterki liði Fjölnis. Eins og ég sagði við ykkur þá yrði þetta erfiður leikur og mikil barátta. Hann hefði nú getað endað öðruvísi ef að við hefðum nýtt færin okkar betur :-).

Jákvætt úr leiknum:
Það fengu margir leikmenn að spila, þið leystuð málin þó að það var alltaf að koma nýr og nýr leikmaður inná, við fengum færi, þið fóruð eftir fyrirmælum um að spila út úr vörninni, þið börðust, við vorum miklu meira með boltann og að sjálfsögðu við unnum.

Neikvætt úr leiknum:
Nýttum ekki færin okkar, lítill talandi, boltinn fór of mikið inn á svæðið sem að hann var að koma úr, vorum þess vegna ekki að skipta nægilega mikið á milli kanta, skutum ekki nægilega mikið fyrir utan teig, ætluðum of oft að labba með boltan inn í gegnum vörnina, þetta er nóg í bili.

Endilega skrifið hvað ykkur fannst um leikinn, sama hvort að þið eruð sammála mér eða ekki.

María Rós bað ykkur um að skoða rauða jakkann ykkar og athuga hvort að þið séuð með hennar, fundarlaun í boði.

En nú fara spennandi hlutir í gang hjá okkur eins og þið sjáið á dagskráni. Það er mikilvægt að allar mæti á þennan fund.


Dagskráin:

Þriðjudagurinn 7.nóv, Leiknisvöllur
kl 20:45-22:00, klæða sig vel

Fimmtudagurinn 9.nóv, ÍSÍ (Laugardal)
Fundur kl 18:30-19:30, með Betu og fleirum

Fimmtudagurinn 9.nóv, KR-völlur
kl 19:45-21:00, klæða sig vel

Föstudagurinn 10.nóv, Egilshöll
Leikur við Fylki, mæting kl 19:30
nánar síðar.....

Tímasetning og staðsetning á næstu æfingu gæti breyst

Laugardagurinn 11.nóv, Safamýrin
kl 14:30-16:00, klæða sig vel

Sunnudagurinn 12.nóv, Egilshöll
kl 11:30-13:20, klæða sig illa


Gullmoli dagsins:

"Sjálfsálit er fyrsta skýring á velgengni"


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?