<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, nóvember 13, 2006

Vikan hjá okkur..... 

Jæja stelpur

Þá er Haustmótið KRR búið og nú tekur við æfingar sem að við miðum dálítið við að bæta hjá okkur formið......sem sagt það verður mikið hlaupið.

Ég hef sagt við ykkur að það sé síða sem að ég mundi vilja að þið mynduð gefa ykkur tíma til þess að skoða. Þetta er síða hjá Loga Geirssyni sem er atvinnumaður í handbolta í þýskalandi, ég get lofað ykkur því að þið munið ekki sjá eftir því að skoða síðuna:

http://www.logi-geirsson.de/4.html

Einnig er komið að skráningu á Jólamót KRR hjá 2.fl.kv og fer það fram laugardaginn 30.des í Egilshöll. Spilaður er 7 manna bolti en með stórum mörkum, leiktími er 1 x 20 mín. Ég þarf að fá að vita hverjar verða í bænum á milli jóla og nýárs til að taka þátt í þessu móti, skrifið það í "comment" hér að neðan, sem fyrst.

En það er smá breytingar hjá okkur á þriðjudaginn og fimmtudaginn, sjá hér að neðan.


Dagskrá:

Þriðjudagurinn 14.nóv, Egilshöll
kl 18:15-20:00, spil og hlaup

Fimmtudagurinn 16.nóv, Rimaskóli
kl 17:00-19:00, töflufundur

Laugardagurinn 18.nóv, ?
kl ? , nánar síðar

Sunnudagurinn 19.nóv, Egilshöll
kl 11:30-13:15


Spakmæli dagsins:

"Hugarfar er það sem stjórnar öllu!!!"



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?