<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, desember 18, 2006

Frí hjá okkur, hmm af hverju ? 

Jæja stelpur

Þetta var góður tími hjá okkur í íþróttahúsi íþróttaháskólans á laugardaginn. Þar fórum við lauslega yfir hvernig við ætlum að spila á innanhúsmótinu sem fer fram 13.jan minnir mig uppá Akranesi.

Það verður valinn 12 manna hópur í það verkefni og það verður enginn ungmannafélagsandi yfir því vali. Einnig er það þannig að þó leikmenn verða valdir í þann hóp þá er það með ekki sagt að allir spili jafnt og það getur gerst að einhverjir spili ekkert.


En dagskráin hjá okkur núna fyrir jól á þessa leið:

Þriðjudaginn 19.des, Valsheimilið (innanhús)
kl 13:00-15:00, gæti verið að tímasetningin breytist smá, fylgjast með

Miðvikudagurinn 20.des, Valsheimilið (innanhús)
kl 13:00-15:00, ég verð ekki á staðnum en þið farið bara í skalló sem mætið :-)

Fimmtudaginn 21.des, Afrekshópur Vals
kl 17:00 verður fyrsti fyrirlesturinn fyrir þá sem eru búnar að skrá sig í Afrekshópinn og fer hann fram í ráðstefnusal ÍSÍ í laugardalnum

Föstudagurinn 22.des, Austurbergi (innanhús)
kl 10:00-12:00, gæti verið að það verði æfingaleikur

Svo eigum við eftir að finna dagsetningu fyrir litlu Jólin hjá okkur. Þau fara þannig fram að allir eiga að kaupa gjöf fyrir 1000 kr og pakka henni inn. Svo verður pökkunum dreift þannig að enginn fái gjöfina sem að viðkomandi keypti sjálf og svo borðum við eitthvað saman en nánar um þetta síðar......


Spakmæli dagsins eru:

,,Sæla er að gefa en að þiggja"



Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?