laugardagur, desember 30, 2006
Nú er árið á enda.........
Jæja stelpur
Til hamingju stelpur með sigurinn á Jólamóti KRR í Egilshöll.
Eins og kom í ljós í dag þá verðum við að vinna sem lið til þess að ná árangri, því án þess náum við ekki árangri og lið 1 gerði það og hvað uppskáru þær >>> SIGUR. Lið 2 hélt að þær þyrftu ekkert að hafa fyrir þessu og því fór sem fór. Lið 3 barðist mjög vel og geta þær verið sáttar með sinn hlut í þessu móti
Nú er þetta ár búið og það er alltaf gott að enda vel og það gerðum við. Næst á dagskrá hjá okkur er Íslandsmót innanhús og þar munum við spila sem lið, því að við viljum ná árangri. Ég er enn að vinna í því að setja saman hóp sem að ég tel líklegan til að ná árangri í innanhúsmótinu. Einhverjar verða ekki valdar því að það verða bara 12 sæti í boði, einhverjar verða svekktar og sárar yfir því að verða ekki valdar og er það bara allt í lagi. Ég elska það þegar að leikmaður getur sannað fyrir mér að ég hafi haft rangt fyrir mér með val á liði eða hóp.
En smá um árið hjá okkur í 2.fl.kv hjá Val
Íslandsmótið innanhús 2006 var mót þar sem að við stóðum okkur mjög vel. Unnum riðilinn okkar mjög örruglega 3 sigrar, lið eins og Keflavík, FH og ÍA var ekki neinn fyrirstaða fyrir okkur og við fórum í úrslitakeppninna. Í úrslitakeppninni sem var spiluð þannig að það voru 2 x 3 liða riðlar, í okkar riðli voru Stajrnan og Tndastóll. Þar unnum við okkar riðil með 2 sigrum, 1 mjög örruglegum á móti Tindastóll en svo 1 barráttusigur á móti Stjörnunni 1-0. Komnar í undanúrslit og mótherjar okkar voru hið geysisterka lið Breiðabliks. Það var háður hörkuleikur og endaði hann 2-3 fyrir Breiðablik og var það hörkuspennandi leikur þar sem að okkur fannst við frekar óheppnar en svona er boltinn. Eftir var svo leikurinn um 3 sætið og þar mættum við liði Stjörnunar og ætluðu þær ekki að leyfa okkur að vinna sig aftur en sú varð raunin og lokatölur 4-2 fyrir okkur og 3. sætið í höfn.
Reykjavíkurmótið 2006 var ágætis mót hjá okkur þar spiluðum við 4 leiki. Niðurstaðan var sú að við töpuðum 1 leik á móti fyrnasterki liði Fjölnis en unnum KR, HK/Víking og Þrótt. Við lentum í 3 sæti á lélgeri markatölu með 9 stig eins og Fjölnir og KR.
Íslandsmótið 2006 var dálítið skemmtilegt mót þó að við hefðu ekki endað á þeim stað sem að við vildum þá unnum við nokkra góða sigra. Þar hæðst ber að nefna 2-0 sigur okkar á Breiðablik í Kópavogi og 5-2 sigur okkar á Íslandsmeisturum Stjörnunar á Hlíðarenda. 12 leikir og þar af voru 6 sigrar, 1 jafntefli og 5 ósigrar, niðurstaðan var 3-5 sætið með 19 stig, eins og KR og Þór/KA en við vorum með slæma markatölu eða -10 og þess vegna var 5. sætið okkar. Miða við aðstæður hjá okkur þetta árið þá er þetta ásættanlegur árangur, þó að við vitum það allar að við hefðum getað betur.
VISA-bikar 2006 þar lentum við á móti Haukum í fyrsta leik og töpuðum við honum 3-5 eftir að staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma. Þessi leikur var mjög sérstakur fyrir margar sakir sem verður ekki talið upp hér og það verður gert betur á næsta ári, promise. En þó að ég taki ekkert frá Haukunum því að þær fóru alla leið í úrslitaleikinn en töpuðu þar.
Haustmót KRR 2006 var mót sem að allir leikmenn fengu tækifæri og var þetta mót notað í þeim tilgangi til þess að þjálfari gæti kynnst þeim leikmönnum sem að voru að koma inn í flokkinn og að prófa ýmsa hluti, alls voru 23 leikmenn sem að spiluðu í þessu móti. Við spiluðum 5 leiki og töpuðum bara einum á móti sigurliðinu og lentum þess vegna í 2 sæti með 12 stig en sigurliðið KR endaði með 13 stig en þar var markatalan okkar 9 í plús, sem er mjög jákvætt.
Jólamót KRR 2006 er mótið sem að við vorum að ljúka og enduðum við þar sem sigurvegarar eða lið 1 hjá okkur kláruðu mótið í vítaspyrnukeppni á móti KR, aldrei leiðinlegt ha ha ha. Þar vorum við með 3 lið og bjuggust allir við að lið 2 hjá okkur myndi rústa þessu mót með 4 leikmenn í U19 hópnum og 1 leikmann sem er í úrtakinu hjá U17. En svo fór ekki sú sjóferð og tel ég það vera af þeirri ástæðu að þær spiluðu ekki sem lið og allar vildu þær vera hetjur. Í staðinn fyrir að spila einfaldan bolta þá varð að gera fótbolta flókinn sem hann er ekki. Lið 1 kom þarna inn til þess að vinna saman og gerðu það enda uppskáru þær sigur í mótinu, flott stelpur. Lið 3 var ekki fullmannað vegna meiðsla og veikinda þannig að við fengum lánaðar 5 stelpur úr 3.fl og þurftu þær virkilega að hafa fyrir því en þær börðust alla vel og gerðu sitt besta, ég bið ekki um meira en það.
Niðurstaðan er sú að á árinu spiluðum við 29 leiki (þar sem að við vorum með 1 lið í keppni, Jólamót KRR er ekki tekið með) og þar unnum við 19 leiki, gerðum 1 jafntefli og við töpuðum 9 leikjum og þar af eru 5 tapleikir úr Íslandsmótinu.
Ferðin til Keflavíkur sem að við fórum í byrjun tímabilsins var frábær ferð og þar lögðum við grunninn af því sem að við munum gera á þessu tímabili og tel ég að það sé strax komin árangur vegna þeirrar ferðar hjá okkur. Við munum fara aftur í svona ferð, promise.
Ekki má gleyma hlut Röggu í árinu hjá okkur og megum við telja okkur heppnar að hún sé tilbúinn að eyða tíma í okkur, takk fyrir það Ragga, we love you all.
Svo eru menn eins og Bjössi og Orri sem hafa komið að starfi flokksins á einn eða annan hátt og er þeirra stuðningur mikils metin, takk æðislega, þið eruð steiktir en góðir gæjar. Hafa þeir oft komið með sólskin til okkar þegar að það hefur verið þungbúið og mikil rigning hjá okkur, ekki satt stelpur ? Einnig skal ekki gleyma að það voru þó nokkrir leikmenn úr 3.fl.kv sem að aðstoðuðu okkur þó nokkuð á þessu tímabili, takk stelpur.
Mætingar á árinu 2007 hafa meira gildi en áður og verður krafist betri mætingar hjá leikmönnum. Þið munuð þurfa að skila inn mætingarskýrslu í hverri viku til mín á netfangið mitt og byrjar þetta strax í næstu viku, fyrsti skiladagur er sunnudagurinn 7. jan. Þið þurfið að útskýra fjarvistir ef að þær eru og skrifa einnig allt sem að þið gerið aukalega í viðkomandi viku sem og að sjálfsögðu staðfesta að þið hafið verið á æfingunum í viðkomandi viku. Ekki reyna neina vitleysu þið munuð ekki koma út sem sigurvegarar úr því, you can take that to the bank.
Með kveðju Teddi

En ég óska ykkur gleðilegs nýrs árs
og bið ég ykkur um að ganga
varlega um gleðinar dyr.

Comments:
Skrifa ummæli